31.03.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 585 í B-deild Alþingistíðinda. (1187)
2. mál, fjáraukalög 1908 og 1909
Einar Jónsson:
Það eru að eins örfá orð. Út af því, sem einn háttv. þm. sagði um daginn, að heppilegt mundi að koma á svifferju á Rangá, skal eg geta þess, að eg kom að máli um það við verkfræðing landsins, og kvað hann svifferju vera óhugsanlega vegna grynninga.
Eg skal ekki fara neitt út í Rangárbrúarmálið í þetta sinn, læt mér nægja að skírskota til þess, sem eg hefi áður sagt. Eg treysti háttv. þingd. til sanngirni, sérstaklega treysti eg hv. form. fjárlaganefndar, sem benti okkur á að hafa breyt.till. þannig að tillag kæmi frá sýslunni. Þetta fanst mér um daginn eina skynsamlega ástæðan á móti fjárveitingunni, en allar aðrar lýstu sér í því, að þær voru sprotnar af misskilningi og ókunnugleika. Þar sem því þessi ástæða er fallin, verður ekkert haft á móti fjárveitingunni með nokkurri sanngirni.