20.04.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 592 í B-deild Alþingistíðinda. (1197)
2. mál, fjáraukalög 1908 og 1909
Pétur Jónsson:
Mér skildist á ræðu hæstv. ráðherra (B. J.), að það mundi vera fáanlegur maður nú þegar til þess, að takast á hendur að vera verzlunarerindreki. Með því að all-mjög veltur á því, hver maðurinn er, þá vildi eg mælast til þess, að hæstv. ráðherra (B. J.) vildi skýra deildinni frá því, ef hann hefði vísan mann í huga, og þá hver þessi maður væri, því það mundi frekar afla málinu fylgis. —