20.04.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 593 í B-deild Alþingistíðinda. (1199)
2. mál, fjáraukalög 1908 og 1909
Ráðherrann (B. J.):
Eg vil lýsa því aftur yfir út af fyrirspurn háttv. 2. þm. S.-Múl (J. ÓI.), að eg ætlast til þess, að enginn sé til þessa starfa valinn (viðskiftaráðunauts), sem reki nokkra verzlun eða aðra atvinnu fyrir sjálfan sig eða aðra. Hann má ekki vera nokkurs manns umboðsmaður annars en stjórnarinnar. Hann á að vera öllum óháður og eingöngu starfsmaður landsins. Viðskiftaerindrekarnir mega alls ekki hafa umboðsmennsku starfa á hendi, því að eg tel það verzlun eða atvinnu fyrir sjálfa þá. Það er því afar-áríðandi, að þeir séu sem allra óháðastir. — Hins vegar get eg ekki orðið við tilmælum háttv. þm. S.-Þing. (P. J.) um það, að nafngreina þann mann, er staða þessi sé ætluð, og er það bæði af því, að eg hefi ekki enn fast ráðið neitt um það, og af því, að eg ætlast til, að þingmenn láti sig það litlu skifta, hver maðurinn er, hvað hann heiti, ef hann er að eins vel til kjörinn, að annast þetta starf. Meira að segja, þótt eg hefði haft einhvern tiltekinn mann í huga, hann og engan annan, þá mundi eg telja mjög óheppilegt, að fara að nefna hann hér. Eg er mjög hræddur um, að það eitt kynni að valda háskalegri sundrungu í þessu máli.