03.04.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 596 í B-deild Alþingistíðinda. (1208)

3. mál, fjáraukalög 1906 og 1907

Framsögumaður (Hálfdan Guðjónsson):

Eg geng nú út frá því eins og gefnu, að deildin hafi þegar kynt sér landsreikninginn og aths. yfirskoðunarmanna við hann svo og svör stjórnarinnar. Nefndarálit það sem við höfum lokið við er fljót-athugað.

Þess vildi eg þó geta að eg hefi ástæðu til þess að minna á fjárveitinguna til þess að kosta utanför til að kynnast heyrnar- og málleysingjakenslu Þar hefir verið greitt meira en ákveðið var af þinginu, og það sett á fjáraukalög og er naumast um annað að gera en samþ. það. Þess verður að gæta, að sá, er för þessa fór, hafði sett upp þessa upphæð. Hann neitaði því næst að fara fyrir þá fjárveitingu, er þingið tiltók. Málleysingjakenslan mátti ekki niður falla. Var stjórninni þá sá einn kostur að veita hina hærri upphæðina. Hinn liðurinn er um fjárkröfu eða ábyrgð á hendur Björgvin Vigfússyni vegna vantalins lausafjárskatts. Hann hefir reiknað eftir annari verðlagsskrá en rétt var, það er þeirri, er í gildi var þegar þingseðlarnir voru gefnir út í aprílmán. í stað þeirra, sem í gildi gekk eftir miðjan maí s. á. Af því hefir skekkja hlotist. Nefndin veit það að þetta er ekki með ásettu ráði gert, en þó getur hún ekki þar sem þetta hefir komið fyrir aftur, lagt til að því sé slept og sízt fyrir seinasta árið, því að þá hafði hann fengið athugasemdir við reikninginn og var því auðgert að reikna á réttum grundvelli að minsta kosti það árið.