29.04.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 599 í B-deild Alþingistíðinda. (1213)

3. mál, fjáraukalög 1906 og 1907

Eggert Pálsson:

Eg get ekki látið vera að lýsa því yfir að mér þykir hin hv. nefnd vera nokkuð hörð í horn að taka gagnvart fyrverandi sýslumanni Skaftafellssýslu. Þessi misskilningur, sem hér er um að ræða, er upprunalega ekki honum að kenna, það vita og viðurkenna allir. Annar maður, sem hafði verið settur sýslumaður í sýslunni, hafði byrjað á þessum ranga útreikningi. Og þegar þessi sýslumaður kom að, áleit hann þá aðferð alveg rétta og sjálfsagða, sem fyrirrennarinn hafði brúkað, að reikna manntalsbókagjöldin eftir þeirri verðlagsskrá, sem er í gildi, þegar þingað er. Það er ófrávíkjanleg regla í öllum öðrum sýslum landsins og það var því fylsta ástæða fyrir hann að ætla, að það sama gilti í Skaftafellssýslu. Hitt er annað mál, að við nána athugun verður það bert, að í Skaftafellssýslum má ekki í þessu falli hafa sömu aðferð og í öðrum sýslum landsins. Í Skaftafellssýslum er það regla að halda manntalsþingin miklu fyr en annarsstaðar. Afleiðingin af því er sú, að sú verðlagsskrá, sem fara á eftir með útreikning manntalsbókagjaldanna, er ekki gengin í gildi, þegar þingað er. En þessa hafði sýslumaður sá, sem hér á hlut að máli ekki gætt. Af því stafar villan. En sökin er þó ekki hjá honum einum heldur fyrirrennara hans, svo að ætla má, að allir geti verið sammála um að hér sé ekki um ásetning að ræða heldur um vangá — og það mjög afsakanlega vangá —sem rétt og sanngjarnt sé að ábyrgð sé ekki gerð gildandi fyrir að neinu leyti. Þess ber líka að gæta, að ekki einn eyrir af peningum þeim sem hér er um að ræða, hefir runnið í sýslumannsins vasa heldur orðið gjaldendum til nytja. Mér finst því að Nd. gerði réttast í að láta við svo búið standa, sem Ed. hefir viljað vera láta — og það því fremur, sem í Ed. sitja menn, sem hafa glögga þekkingu á þessu máli og eftir nána yfirvegun hafa lagt til að allar skaðabótarkröfur skyldu niður falla út af misgáningi þeim, sem hér hefir átt sér stað.