23.02.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 674 í B-deild Alþingistíðinda. (1249)
87. mál, vantraust á ráðherra
Pétur Jónsson:
Það var h. 2. þm. Húnv. (B. S.), sem kom mér til að standa upp. Eg lagði þann skilning í orð hans, að eiginlega væri það hann og hans flokkur, sem vildi þingræði, og að mótmæli þau er kæmu fram af hálfu okkar minni hluta manna gegn þingsályktun þeirri, er fyrir liggur, bæri vott um, að oss væri eigi svo ant um þingræðið. Þannig virtist hann að minsta kosti skilja orð 2. þm. Rangv. (E. J.). Háttv. þm. gætir ekki að því að ekki er enn þá búið að ganga til atkv. um till. þá, er hér er verið að ræða; þá fyrst þegar búið er að samþ. hana, sést það, hvort þingræði er viðurkent í þessu landi eða ekki.
Við minni hluta menn höfum viljað sýna fram á það, að þingsál.till. þessi er hér er um að ræða, væri markleysa ein, á engum rökum bygð, og þótt eg verði að játa það, að eg hafi ekki miklar vonir um að mönnum snúist hugur í þessu máli, þá er þó aldrei fyrir það að synja, að mönnum geti snúist hugur, er þeir heyra nánari skýringar á málinu, og menn eiga alt að geta tekið á móti sannleikanum, hve nær sem hann kemur.
En þó eg verði að játa það, að mér þyki það mjög sorglegt að núverandi stjórn þurfi að víkja frá völdum, þá er þó eitt gleðilegt við það að við eigum það atriði nú í svo góðum höndum, að við fáum að sjá og reyna að þingræði er viðurkent í þessu landi, að það er svo langt frá því að minni hlutinn vilji ekki að þingræðið sé viðurkent, að hann mundi undir engum kringumstæðum óska þess, að ráðh. heldi við völd, eftir að vera kominn í minni hluta í þinginu.