23.02.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 675 í B-deild Alþingistíðinda. (1250)

87. mál, vantraust á ráðherra

Jón Ólafsson:

Herra forseti! Eg stóð upp einungis til þess að mótmæla 2. þm. Húnv. (B. S.). Það var ósatt hjá honum, sem hann sagði, að sum nöfnin undir skjölunum úr Húnavatnssýslu hefðu ekki verið fölsuð. Hann sagði, að eg hefði verið að bera óhróður á einstaka menn; en það er heldur ekki satt, því eg hefi að eins sagt, að nöfnin væru fölsuð, en ekki hverjir fölsuðu þau, eg veit það ekki, og ber því engum sérstökum það á brýn, en hitt veit eg, að sum nöfnin voru fölsuð.

Sá þessi þm. þegar menn skrifuðu undir skjölin? Var hann á hverjum einasta bæ, sem skjölin komu á? Veit hann einu sinni hver nöfn á því og því skjali stóðu? Nei, um þetta veit hann ekkert; en eg hefi séð nöfnin og spurst fyrir um sum, og veit, að þar stóðu nöfn manna, sem vilja synja með eiði fyrir, að þeir hafi skrifað eða heimilað nokkrum öðrum að skrifa nöfn sín. Þingmaðurinn talar hér því eins og blindur maður um lit. Og svo beinir hann á slíkum grundvelli ærumeiðandi orðum að mér. Eg skora á hann að endurtaka þau orð fyrir utan þingsalinn, og þá skal eg koma honum í skilning um, hvað það hefir að þýða, að hafa slíkan munnsöfnuð.

Háttv. 2. þm. Rvk. (M. Bl.) var að ávíta mig fyrir það: að eg hefði meitt og móðgað ýmsa starfsmenn þingsins með því að nefna þá smala og skósveina síns flokks, meiri hlutans, þar sem þeir gætu ekki borið hönd fyrir höfuð sér. Eg get enga meiðing eða móðgun séð í þessum orðum mínum, sem auk þess voru alls ekki sögð í þeim tilgangi að niðra þeim mönnum á nokkurn hátt. Þvert á móti álít eg það í alla staði heiðarlegt starf, að vera duglegur smali síns flokks, miklu heiðarlegra en að vera fákænn og einskis nýtur þingmaður. Það er hinn háttv. 2. þm. Rvk. (M. Bl.) en ekki eg, sem telur það meiðandi að vera flokkssmali meiri hlutans; eg var að eins að benda á, hve óhlutdrægur háttv. meiri hluti væri í vali starfsmannanna við þingið.