19.02.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 699 í B-deild Alþingistíðinda. (1259)

5. mál, samband Danmerkur og Íslands

Jón Þorkelsson:

Ágreiningurinn er sá sami milli mín og hæstv. ráðh. um það, hvernig semja beri.

Eg held því fast fram, að samningarnir eigi einmitt að fara fram við konung einan, og ekki öðruvísi.

Þegar vér gengum undir einveldið gerðum vér það sem sjálfstætt og fullvalda ríki, og áttum vér þar við konung einan. Nú ber honum að skila af sér réttindum þeim, er við léðum honum, skila þeim úr sínum eigin höndum beint okkur í hendur, en als ekki gegnum hendur annara.

Samningsaðilinn er hér á aðra hönd ríkið Ísland og hins vegar konungur.

Þykist eg vita, að ráðherrann muni þessu fyllilega samþykkur, þegar hann íhugar málið betur.

Þegar Ísland gekkst einveldinu á hönd, varð staða þess nákvæmlega sú sama og Noregs, og enda Danmerkur. Enginn neitar því, að Noregur hafi altaf verið konungsríki. Norskum málum var stjórnað eins og íslenzkum af stjórnarráðunum dönsku.

Noregur varð að vísu ekki betur úti en Ísland, en það losaðist fyrr undan erlenda valdinu.

Íslandi bera alveg sömu réttindi og Danmörku, þegar einveldinu létti þar af, og þau réttindi eigum vér nú heimting á að fá.