28.04.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 703 í B-deild Alþingistíðinda. (1267)
5. mál, samband Danmerkur og Íslands
Framsögumaður meiri hlutans (Jón Þorkelsson):
Eg ætti í rauninni ekki að þurfa, að vera langorður hér að sinni um þetta afar-mikilvæga mál. Það hefir nú verið svo þaulrætt, svo að segja alt frá jafnlengd í fyrra á hverjum mannfundi, svo að kalla, sem haldinn hefir verið um endilangt þetta land, að þar getur nú litlu verið við að bæta, er geri málið ljósara. Síðan hefir það nú og verið tekið til meðferðar, umræðu og atkvæða á öllum þingmálafundum landsins, síðastliðið ár, svo að það er nú orðið öllum þraut-kunnugt út í æsar í hverju einstöku atriði. Og eins og von er, þá hefir þjóðin látið sig þetta mál svo miklu skifta, að varla munu dæmi til þess, að landsmenn hafi gert sér jafnglögga grein fyrir nokkru máli öðru. Það hefir komið alveg skýlaust fram, hver vilji alls þorra landslýðsins sé um þessa sök, hverjar kröfur þjóðin gerir sjálfri sér til handa og til hvers hún ætlast af þinginu, en það er að halda fram fullveldi lands og þjóðar í öllu gagnvart Dönum. Hér er því um ekkert að villast.
Allur þorri landsmanna kannast ekki við það, að í frumvarpi því frá millilandanefndinni, sem hér liggur nú fyrir, sé landi þessu og þjóð ætlað fullveldi yfir öllum málum sínum. — Eftir frumvarpi þessu er að vísu ætlast til þess, eða gert ráð fyrir því, að vér, þegar stundir líða og með ófyrirsjáanlegum eftirgangsmunum, getum fengið fullveldi yfir öllum málefnum vorum, að undanskildum þremur: konungssambandi, utanríkismálum og hermálum, sem vér eigum að hafa sameiginleg með Dönum og þeir að ráða yfir. Að vísu er gert ráð fyrir því, að endurskoðun geti eftir ákveðinn tíma átt sér stað á frumvarpi eða lögum þessum, en þar stendur ekki eitt orð um það, að vér eigum nokkurn rétt á því, að fá þessi mál nokkurn tíma í vorar hendur. Þessi mál skulu því um aldur og æfi, ef þeim er ekki góðmótlega sleppt við oss, vera sameiginleg fyrir bæði ríkin, Ísland og Danmörku, og vér ekkert hafa yfir þeim að segja. En utanríkismál og hermál eru þau stórmál, og oss svo áríðandi, hvort upp á sinn máta, að vér um fram alt megum ekki láta þau svo af höndum, að þau sé ekki laus við oss í framtíðinni og niðja vora, þegar vér heimtum þau, eftir einhverjum ákveðnum reglum.
En auk þessa er frumvarp þetta óljóst um margt, og svo sem orðað á huldu í ýmsum atriðum, og eftir því verður réttarstaða landsins heldur óákveðin. Að vísu hefir því verið haldið fram af meiri hluta millilandanefndarinnar, að landinu sé ætlað að vera ríki. En sá galli er þó á því, að það er í öllu frumvarpinu endanna á milli forðast að nefna það »ríki«. Í 1. gr. frumvarpsins, þar sem áríðandi var að orðið »ríki« einmitt stæði, stendur orðið »land«, sem ekki gefur neina ákveðna réttarstöðu til kynna. Þó að í athugasemdum við frumvarp þetta hafi verið á einum stað tæpt á orðinu »en særlig Stat«, þá er ekki mikið upp úr því að leggja. Orðið »Stat« þarf ekki að þýða annað en »fylki« í ríkisheild með meira eða minna lítilfjörlegri heimastjórn (homerule) í nokkrum fylkismálum. Að hér sé heldur ekki annað meint en »fylki« — og ekki »ríki« — vottast nú og af því, að Danir játa það nú sjálfir, að þeim hafi aldrei dottið í hug, að Ísland ætti að verða »ríki« og því síður »fullvalda ríki« jafn rétthátt við Danmörku.
Þó að mönnum hafi nú ekki geðjast að því, hvernig til þessa frumvarps var stofnað og hvernig það er til orðið, eins og tekið er fram í nefndaráliti voru, höfum vér þó, meiri hluti nefndarinnar, ekki viljað ráða til þess, að fella það umsvifalaust, heldur höfum vér valið þann veg, að gera við það breytingar, er bæði gerðu ákvæði þess skýr, ljós og ótvíræð, og að það kæmi ljóst fram, að landið væri fullveðja ríki, sem og ætti lausn á öllum málum sínum, að undanteknu konungssambandinu einu og borðfé til konungs og ættmenna hans.
Breytingartillögur vorar skal eg nú fara lauslega yfir, og gera stuttlega grein fyrir þeim.
1. gr. er með breytingum okkar þannig: »Ísland er frjálst og fullvalda ríki í sambandi við Danmörku um einn og sama konung og þau mál, er dönsk stjórnarvöld fara með í umboði Íslands samkvæmt sáttmála þessum«. Í stað þess er stendur í sambandslagafrumv.: »Ísland er frjálst og sjálfstætt land« í veldi Danakonungs o. s. frv.
Sömuleiðis höfum vér breytt 2. gr. all-mikið. Fyrir orðin (í 1. línu) »er gildir« komi »er nú gildir« (1.—2. lína). Vildum vér eigi, að þessi ákvæði tæki lengra, en til Glücksborgarættar þeirrar, sem nú er rétt borin til ríkis með Dönum.
Eins er það, hvað snertir rétt konungs til þess, að hafa á hendi ríkisstjórn í öðrum löndum. Er í breytingartillögum vorum nokkurn veginn skýrt ákvæði um það, að hann megi ekki hafa slíka ríkisstjórn á hendi, þó að ríkisdagurinn danski samþykki, nema því að eins, að það fyrirkomulag sé líka samþykt af alþingi Íslands. Eigi höfum vér heldur viljað, að sama gildi hér og í Danmörku, þegar konungur er »ófullveðja« barn eða þjáður af langvarandi sjúkdómi, t. d. geðveiki eða fásinnu, er geri hann óhæfan til ríkisstjórnar, heldur er þá ætlast til, að Íslendingar sjálfir geri ráðstafanir, að sínu leyti um það, hver hafa skuli ríkisstjórn á hendi á Íslandi, og hvernig ríkisstjórn þar þá skuli hagað.
Þá höfum vér og felt niður orðin: »svo og ... ríkisarfi til«, og merkir sú tillaga enn, svo sem sú, er talin var fyrir skemstu, að vér viljum ekki binda oss að svo stöddu við neina aðra konungsætt, er koma kynni til valda í Danmörku, en Glücksborgarætt, þá sem nú er þar réttborin til ríkis. Verði hún aldauða til ríkiserfða, þá viljum vér, að Íslendingar hafi óbundnar hendur.
Eins hefir oss þótt nauðsyn til bera, að gera orðabreytingar við upphaf á 3. grein. Við kunnum ekki við »sameiginleg mál«, en vildum heldur hafa »sambandsmál«.
Við 2. lið 3. gr. höfum vér gert breytingartillögu. Eins og menn vita, þá hefir það vakið all-mikla eftirtekt og umtal, að mönnum þykir íslenzki textinn og sá danski ekki í góðri samhljóðan einmitt í þessari málsgrein. Í íslenzka textanum stendur »samþykki«, þar sem í danska textanum stendur »Medvirkning«. Orðið »Medvirkning« getur að vísu merkt »samþykki«, en þarf ekki að merkja það, þarf ekki að merkja annað en »meðverknað«, »samverknað«, tilstyrk, atbeina, aðstoð, sem sá, er minni máttar er getur verið neyddur til að gera nauðugur. Með breytingartillögu vorri, þá höfum vér nú viljað sameina það tvent, að engir utanríkissamningar verði af hendi Dana gerðir, er snerta íslenzk mál, nema því að eins, að rétt íslenzk stjórnarvöld bæði taki þátt í því, að gera samningana, og jafnframt samþykki þá. Þarf því þá bæði við »Medvirkning« Íslendinga og þeirra »Samtykke« til þess, að slíkir samningar sé gildandi fyrir oss,
Eg sé, að háttv. minni hluti hefir einnig gert breyt.till. við þennan lið (3. gr. frv. 2. lið), en sú breyt.till. er að minni hyggju að eins óbótatillaga, skemdartillaga, réttarspillir; hún gerir enn skýrara en áður, að hér sé að eins að ræða um sérmál landsins, en ekki um utanríkismál.
Af þessu er það full-ljóst, að t. d. Spánarsamningur (um íslenzkan fisk), er gerður væri við Spánverja sérstaklega hlyti að liggja fyrir utan þetta »samþykki« (Hannes Hafstein: Þetta er misskilningur). Eg leyfi mér nú að halda fram þessum skilningi, á meðan engin rök koma á móti.
Aðal-breyting meiri hluta nefndarinnar við 3. gr. er sú, að 3. liður þeirrar gr. falli niður. Hermál höfum vér engin og höfum aldrei haft frá alda öðli, hvorki með Norðmönnum eða Dönum. Það er þó svo að vísu, að stjórnarskráin (57. gr.) heimtar af oss landvarnir hér á landi, en ekkert út fyrir það.
Vér höfum í raun réttri ekki önnur lög um þetta en sáttmálann við Ólaf konung helga frá 1022. Árið 1857 kom það til tals, að fá menn héðan af landi kvadda í danska herinn, en þeirri málaleitun var svarað svo, meðal annars í bréfi frá gamla Havsteen amtmanni, að það myndi mælast illa fyrir, með því að engin lög væru til þess.
Slík lagaákvæði hafa aldrei verið til hér og Íslendingar hafa því að lögum engin hermál; þeir eiga að vera hlutlausir, það er þeim hentast, enda ætti það ekki að verða ókleyft. Varnir Dana hrökkva þeim ekki, ef í hart fer, og þeir geta ekki hjálpað Dönum í ófriði, þótt Dönum lægi lífið á. Sameiginleg hermál með Dönum og Íslendingum eru Dönum gagnslaus og oss jafnvel háskaleg.
Þá hefir meiri hlutinn breytt 4. lið 3. gr., en það er ákvæðið um fiskiveiðaréttinn í landhelgi. Það ákvæði frumv. er ófrjálslegt og jafnvel háskalegt, þar sem oss er heimilað að auka eftirlitið með fiskiveiðunum við Ísland að eins eftir samkomulagi við Dani.
Íslendingum á að vera full heimild á að auka fiskiveiðagæzluna alveg eftir því, sem þeir vilja og geta, án þess að spyrja nokkurn að því. Vér höfum því lagt það til, að 4. liður orðist þannig: »Gæzla fiskveiða í landhelgi Íslands, að óskertum rétti Íslands til að auka hana«. En fyrir orðin »fiskiveiða í landhelgi Íslands« stendur í frv. »fiskiveiðar þegnanna«, þ. e. bæði Íslendinga og Dana, sem oss þótti eigi haldast mega.
Helmingur meiri hluta nefndarinnar (eg og 2 aðrir) leggur til, að ákvæðið um endurgjaldið til Dana fyrir gæzluna orðist þannig:
»Endurgjald fyrir gæzlu þessa greiðir Ísland eftir því, sem málsaðilum kemur saman um með sérstökum samningi, er leggist fyrir alþingi til samþykkis«.
En hinn helmingur meiri hluta nefndarinnar vill orða þetta ákvæði þannig:
»Meðan Danir annast strandvarnirnar, njóta þeir jafnréttis við Íslendinga, að því er til fiskiveiða í landhelgi Íslands kemur, nema um annað endurgjald semji«.
Þetta ákvæði er ætlast til að verði ný málsgrein, er bætist aftan við 4. lið 3. gr.
Hin síðari tillagan þótti mér og 2 af nefndarmönnunum fara miður, bæði af því að vér kunnum ekki við að bjóða fram landhelgina, og af því að í sumar kom það ótvírætt í ljós í landinu, að mönnum þótti ilt að Íslendingar væru ekki einir um landhelgina, og að síðustu yrði þetta sérmál vort eftir þessari tillögu eitt af sameiginlegu málunum.
Fæðingjaréttur hér í landi teljum vér að vera eigi undir oss einum kominn, en megi ekki vera sambandsmál. Vér leggjum því til, að 5. liður 3. gr. falli niður.
Ákvæðinu um hæstarétt þótti oss og rétt að breyta, af því að orðalag frv. er hált í þessu atriði og eins víst, að Danir sjálfir þættist eiga að meta það nær dómaskipun landsins væri nægilega breytt til þess, að vér ættum rétt á því, að losna við hæstaréttinn danska. Það þurfti því að taka það skýrt fram, hvenær vér gætum fengið æzta dómsvaldið í landið. Fyrir því höfum vér lagt til að það ákvæði orðist svo: ». . . . þangað til löggjafarvald Íslands setur á stofn æzta dóm í landinu sjálfu«. Ísland á með öðrum orðum að ráða því sjálft, hvenær það fái æzta dóm í landinu.
Þá teljum vér og kaupfánann út á við sérmál vort; vér leggjum því til, að það ákvæði falli burt. Sama er að segja um 4. gr., það er till. nefndarinnar, að hún falli niður sem óþörf.
Á 5. gr. hefir meiri hl. nefndarinnar gert miklar breytingar. Fyrst er það, að jafnréttis-ákvæðinu er breytt þannig, að Danir heimilisfastir á Íslandi o. s. frv. skuli njóta hér jafnréttis við oss. Um það varð lítilsháttar ágreiningur í meiri hluta nefndarinnar, hvort nema skyldi burt úr þessari gr. ákvæðið um forréttindi íslenzkra stúdenta við Kaupmannahafnarháskóla.
Eg leit svo á — og 2 af meðnefndarmönnum mínum — að þessi klausa mætti ekki í sambandslögum standa ; hún væri ótvírætt innlimunarmerki. Það kemur að voru áliti ekki sambandslögum við, hvort ísl. nemendur fá »legat« eða ekki, sem þeir í rauninni eiga fult tilkall til, eftir fornum lagaákvæðum og »statútum«. Hið svo nefnda »kommúnitet«, er hér ræðir um, er í rauninni »legat«, sem konungur lagði til háskólans seint á 16. öld; hann hafði, sem kunnugt er orðið, rænt klaustragóssi bæði hér og í öllum öðrum ríkjum sínum. Fyrir því var fé þetta líka lengi kallað »klaustrafé«, og að hafa »klaustur« eða vera á »klaustri«. Konungur hafði haldið klaustrafénu héðan meir en í 30 ár, án þess nokkuð kæmi í móti áður en íslenzkir námsmenn tæki að njóta þessa fjár.
Vér höfum því að vorri ætlan kröfu til endurgreiðslu á þessu fé, ef vér eigum að vera óræntir réttar vors.
Um þetta atriði klofnaði meiri hl. nefndarinnar eins og eg tók fram áðan; en um það varð nefndin á einu máli, að 2 síðustu málsgr. 5. gr. skyldu falla burtu. Vér litum svo á, að ekkert ákvæði um herþjónustu af vorri hálfu gæti átt sér stað hér, með því að engin sameiginleg hermál viljum vér hafa við Dani, og höfum lagt það til, að 3. liður 3. gr. verði feldur niður. 57. gr. stjórnarskrárinnar stendur óhögguð fyrir því, með því að til landvarnar hér á landi erum vér skyldir eftir sem áður.
Ennfremur þótti full ástæða til að fella burtu fiskiveiðaákvæðið: að Danir og Íslendingar séu hér og í Danmörku jafnréttháir í því efni. Og hvaða gagn er það oss, þótt vér njótum jafnréttis við Dani, að því er fiskiveiðar við Danmörku snertir. Þau skifti væri hinn mesti ójöfnuður fyrir oss. Fiskimið þeirra geta á engan hátt jafnast við fiskimið vor, enda oss annað hentugra en að gera menn til róðra í útver til Danmerkur.
Þá vildum vér breyta orðalagi 6. gr. algerlega. Fyrri málsgr. orðist svo: »Í umboði Íslands fara dönsk stjórnarvöld með mál þau, er talin eru í 3. gr., unz uppsögn fer fram af annari hvorri hálfu, samkvæmt fyrirmælum 9. gr.« (er nú verður 7. gr.).
Vér vildum, að það kæmi skýrt fram, að hér væri um umboðsmál að ræða, og að hægt væri að segja þeim lausum á 25 ára fresti, öllum nema konungssambandinu einu.
Á 7. gr. gerðum vér orðabreytingar, samkv. því, sem á undan er farið. Þar ætlumst vér til að standi svo:
»Meðan Ísland tekur ekki frekari þátt í meðferð sambandsmálanna en um getur í 3. gr., tekur það heldur ekki þátt í kostnaði við þau, nema hvað Ísland leggur fé á konungsborð.«
Þá kemur þessi 8. gr., sem að mörgu leyti er einhver leiðinlegasta hneykslunarhellan í öllu frumv. Þar er ákvæðið um, að dómsforseti hæstaréttar skuli sjálfkjörinn oddamaður, ef ágreiningur verður. Hér er misréttið svo gínandi, að engin von er til þess, að Íslendingar vilji á nokkurn hátt hafa slíkt ákvæði í þvílíkum sambandssáttmála sem þessum. Það hefði getað komið til mála, að hlutkesti milli dómstjórans í hæstarétti Dana og æzta dómarans á Íslandi hefði ráðið, ef ágreiningur varð um oddamann. En vér álítum grein þessa ekki nauðsynlega, og höfum því lagt það til, að hún falli niður með öllu.
9. gr. frumv. er í rauninni flækjugrein; hún er staglsöm og illa orðuð. Henni vildum vér því breyta og gera hana einfaldari, en 25 ára frestinum vildum vér þó halda, og jafnframt, að ákveðið væri, að alt, nema konungssambandið eitt, geti orðið uppsegjanlegt eftir þann tíma með eins árs fyrirvara, hvort heldur ríkisþingið danska eða alþingi Íslendinga óskar þess.
Hinn háttv. minni hluti hefir gert ráð fyrir, að Danir myndu ekki taka slíku sambandi og hér er farið fram á, þar sem öll mál séu uppsegjanleg, en vér höfum þó ekki vílað fyrir oss, að halda fram slíku sambandi, sem oss hentugustu og því eina tiltækilega, ef samband skal haldast. En það hafa vitrir menn sagt oss, að ekki muni það verða oss mikið dýrara að ráða oss að fullu og öllu sjálfir, en að hafa konungssambandið eitt.
Má vera, að háttv. minni hluti segi nú, að þetta sé nú ekki annað en »grímuklæddur skilnaður«; hann um það, og mun eg víkja að því atriði síðar.
Hefi eg þá farið í gegn um allflestar breyt.till. meiri hluta nefndarinnar. Vænti eg þess, að háttv. þm., sem nú hafa átt kost á að kynna sér þessar breyt. vorar, sjái hér ekki gægjast fram neinn »grímuklæddan aðskilnað«. (Jón Jónsson, S.-Múl.: Danir geta sagt upp, þegar þeir vilja). Geri þeir svo vel. En eg held menn geti þó sofið rólega fyrst um sinn og kvíðalitið fyrir því, að þeir geri það. Eg hugsa, að þeim sé annara um eitthvað annað en að sleppa oss úr sambandi við sig. Eins og vér leggjum til að frumv. verði, má ganga að því nokkurn veginn vísu, að 25 fyrstu árin verður ekki um annað samband en málefnasamband að ræða — ekki persónusamband, konungssamband eitt. Hitt er annað mál, að vér viljum nú með sáttmála þessum búa svo um hnútana, að eftir 25 ár sé oss heimilt hreint konungssamband við Dani.
Skal eg svo leyfa mér að koma lítið eitt við álit hins háttv. minni hluta; þess er þó að vísu ekki mikil þörf, með því að það líkist miklu fremur almennri blaðagrein ritaðri sérstaklega »fyrir fólkið«, en rökstuddu skjali.
Og það hygg eg vera hið allra kynlegasta nefndarálit, er enn hefir komið fram hér á þingi. Álitið hefst á bullandi skömmum til meiri hlutans fyrir drátt í nefndarstarfinu — og þó hefir hinn háttv. minni hluti orðið langt á eftir með álit sitt, sem er miklu styttra og miklu efnisminna, og einkum eftirtakanlegt fyrir stór orð og staðhæfingar.
Allar breyt.till. hins háttv. minni hluta eru alveg gagnslausar, nema þar sem ríki er sett í 1. gr. og tekið er burt ákvæðið um, að Danmörk og Ísland sé í ríkjasambandi o. s. frv. Þessi breyt. er til bóta, og hefði vel verið, ef öllu hefði verið breytt á líka lund; það hefði þá verið nokkur bröggun að því.
Breyt.till. minni hl. við 9. gr. væri auðvitað til bóta, ef hún næði yfir öll málin, að undanskildu konungssambandinu, en svo er ekki. Sömu málin standa föst og áður, og þau verða því að eins laus, að Danir vilji svo vera láta.
Aðrar breyt. háttv. minni hluta, eru að mestu bráðónýtar orðabreyt. einar; því eg veit varla, hvort breyt.till. um landhelgina er til bóta eða ekki.
Nefndarálit hins háttv. minni hluta er að mörgu einkennilegt, eins og þegar hefir verið sagt; þar eru staðhæfingar margar, og allar eiga þær sammerkt í því, að ekki er reynt að rökstyðja neina þeirra, þar er t. d. sagt (bls. 3), að persónusamband hafi aldrei verið, sé ekki og geti aldrei verið milli tveggja ríkja, er bæði hafi þingbundna konungsstjórn, og skal eg víkja nokkuð frekar að því síðar.
Persónusamband er furðu gamalt. Eða mun nokkur hér á þingi þora að neita því, að vér gerðum persónusamband við Noreg, konungssamband eitt, 1262, og var þó konungurinn þá hvorki einvaldur í Noregi né á Íslandi; hann var að vísu einvaldur yfir hermálum í Noregi en ekki á Íslandi. Hann var annars um löggjöf bundinn við lögþingin norsku fram undir 1300; hann gaf ekki nein alsherjar lög á eigin hönd án samþykkis þinganna. Landslög Magnúsar konungs lagabætis, bæði Gulaþingslög, Frostaþingslög og Eiðsifjaþingslög eru öll lögtekin á lögþingunum norsku, en ekki gefin út upp á eindæmi konungs.
Eg heyri hér leggja í eyra mitt eitthvað, sem hinn virðulegi 5. kgk. þm. (L. H. B.) úr efri deild er að tuldra, en mætti eg ekki biðja þann háttv. þm. að þegja, þangað til honum gefst kostur á að tala um þetta mál upp í Ed.? Hér á landi gátu menn gefið út lög, án þess að samþykki konungs þyrfti til, en konungur gat engin lög gefið út án samþ. þingsins, ella að þess undirlagi.
Ísland og Noregur sameinuðust um einn og sama konung, gerðu með sér »personalunion«. Má eg nú spyrja: Vilja þeir hinir háttv. herrar, minni hlutamenn hér á þingi, þá standa við það, samkvæmt nefndaráliti sínu, að þessi »sameining« hafi verið »grímuklæddur skilnaður«? Eða var það »grímuklæddur skilnaður«, þá er Svíar og Norðmenn sameinuðust undir einum og sama konungi 1319. Þeir höfðu ekki verið í sambandi áður, en voru nú að ganga í samband. Er minni hlutanum alvara með að þeir hafi verið að skilja, þegar þeir voru að sameinast? Eða er samband að viti minni hlutans sama og skilnaður?
Eða var það »grímuklæddur skilnaður«, er öll Norðurlönd gerðu samband sín í milli undir einum og sama ríkiserfingja 1397 (Kalmarsambandið)?
Það skín glögt út úr nefndaráliti minni hlutans, að hann hefir ekki athugað það, að ríkiserfinginn var einn og hinn sami í öllum þessum ríkjum, eða að ríkiserfingi getur verið sá sami í mörgum ríkjum, þar sem um persónusamband ræðir, og annað en sameiginlegan ríkiserfingja þarf ekki til þess að konungssamband verði. (Jón Ólafsson: Var Ísland þá aðspurt?) Það veit eg ekki og það veit enginn, enda kemur það ekki þessu máli við. Engin skjöl eru nú til, er segi til eða frá um það efni. En hitt mætti háttv. 2. þm. S.-Múl. (J. Ó.) vera fullkunnugt, að bæði var Ísland aðspurt 1319 og svo var það spurt seinna, hvort það vildi hylla hinn sameiginlega konung.
Kalmarsambandið hélzt til 1523, er Svíþjóð losnaði úr sambandinu ettir Stokkhólmsvígin; hin ríkin héldu saman á svipaðan hátt og áður fram til 1537. Þá myndi Noregur eftir kenningum háttv. meiri hluta hafa verið innlimaður, þegar hann var sviftur ríkisráði sínu, þó að hann héldi áfram að vera og nefnast konungsríki. Staða Noregs varð þá í raun og veru alveg hin sama og staða Íslands, nema rýrari um löggjöf. Ísland var því eftir stöðu sinni ríki eins og Noregur.
Eg vil nú enn fremur leyfa mér að spyrja háttv. minni hluta.: Var það »grímuklæddur skilnaður«, þá er England og Hannóver sameinuðust undir einn og sama ríkisarfa, Georg kjörfursta Englakonung 1714, — þessi ríki höfðu ekki verið í sambandi áður—? (Hannes Hafstein: Það var enginn samningur). Það var sá samningur, sami, staddi, statutum, sem vanalega heldur vel, það voru ríkiserfðalög beggja landanna, sem sögðu, að svo skyldi vera. Ríkiserfinginn var einn, og undir hann bar bæði ríkin að lögum, hvernig svo sem stjórnarskipun hvors ríkisins var að öðru leyti háttað. Þetta samband stóð svo til 1837, er Viktoria drottning kom til ríkis á Englandi. Þá var karlleggur konungsættarinnar þrotinn, og kona mátti ekki taka ríki í Hannover, svo að þar kom til ríkis fjarskyldur karlfrændi. Löndin skildu, þegar persónusambandið hætti, en ekki þegar það byrjaði.
Á 18. öld var og enn persónusamband milli Austurríkis, Ungverjalands og Bæheims, er stóð þangað til Karl keisari hinn 6. gerði hina svo nefndu »pragmatisku sanktion« til þess að
tryggja Mariu Theresiu dóttur sinni ríkiserfðir í Austurríkislöndum.
Frá nýrri tíð má einnig að nokkru leyti nefna sem dæmi hér upp á Belgíu og Kongo. (Jón Ólafsson: Kongo?!) — Eg bið háttv. framsm. minni hlutans (J. Ó.) að reyna að þegja þangað til eg hefi lokið máli mínu, þá gefst honum kostur á að sýna sinn fróðleik. Kongo var til skamms tíma stjórnað af Belgíukonungi sem einvaldskonungi með nokkurs konar miðstjórn í Bruxelles, þangað til það var afhent Belgíu sem nýlenda.
Það er þingbundin stjórn bæði í Danmörk og Grikklandi. Og einmitt þau tvö ríki hafa vitrir menn tekið sem dæmi upp á það, hvernig konungssamband (personalunion) milli ríkja myndist eðlilega. Ef karlleggur yrði aldauða frá Friðriki Danakonungi VIII. og frá Valdemar prinzi bróður hans, þá bæri ríkiserfðir í báðum þessum löndum undir niðja Georgs Grikkjakonungs. Og mundi það ekki verða persónusamband ? (Jón Ólafsson: Georg Grikkjakonungur hefir afsalað sér og niðjum sínum tilkall til ríkiserfða í Danmörku). Veit eg það, spyr heldur ekki hinn háttv. þm. að því. En að Georg Grikkjakonungur þurfti beint að segja þessum rétti frá sér og sínum örfum — svo að jafn óhentugt persónusamband eins og milli Grikklands og Danmerkur kæmist ekki á nokkuru sinni — sýnir einmitt, að eg fer með rétta kenningu.
Eitt er það, sem tekið hefir verið eftir spekingnum danska Knud Berlin, er í hvívetna hefir haft allan vilja og viðleitni á því að reynast oss erfiður. Það eru þau ummæli hans, að samband það, er vér gerðum fyrrum við Noregskonung væri innlimun, af því að vér hefðum samið við konung í öðru landi, gert konung í öðru landi að vorum konungi. Á þessa kenningu hans féllst að því er virðist, meiri hluti millilandanefndarmannanna íslenzku.
Nú vil eg spyrja: Höfðu öll ríkin, Ísland, Noregur, Danmörk og Svíþjóð konung í sínu landi á tímabilinu 1319 —1523, höfðu þau konung hvert hjá sér? Eða hverju ríkinu heyrði konungurinn til? Hver af þeim höfðu annars lands konung yfir sér? Varð Noregur skattland Svíþjóðar eða varð Svíþjóð skattland Noregs 1319? Eða urðu Noregur og Svíþjóð skattlönd Danmerkur 1397? Eða varð þá Danmörk og Noregur skattland Svíþjóðar eða Svíþjóð og Danmörk skattlönd Noregs? Öll þessi ríki höfðu hvort um sig, alveg eins og Íslendingar 1262 —64 gert annars land, hvert annars konung að sínum konungi, og ríkin voru öll jafnrétthá.
Eg ætla ekki að fara langt út í það gaman, sem stendur á bls. 4 í nefndaráliti minni hlutans, þar sem verið er að brýna það fyrir kjósendum í landinu, hvað sjálfstæðið kostar. Mér sýnist það efni framsett á þann hátt hjá minni hlutanum, að mál þeirra ætti betur heima í blaðagrein heldur en í nefndaráliti, sem frambærilegt ætti að vera hér á þingi.
Ein spekin, sem eg rek augun í í þessu einkennilega nefndaráliti, og sem er gott sýnishorn þess, hvernig það er í heild sinni rökstutt, er það, að Danmörk sé »elzta« konungsríkið í Norðurálfu heims. Eg hafði hugsað, að sá maður væri ekki til heimsendanna á milli, sem gæti sagt nokkuð með vissu um það, hvert væri elzta ríkið í álfu vorri. En hér kom sá, sem vissi, minni hluti nefndar á alþ. úti á Íslandi! í grárri fornöld og fyrir allar aldir voru öll Norðurlönd smærri eða stærri konungsríki, þegar fyrst fara af þeim nokkrar sagnir, og England t. d. er eftir sögnum orðið konungsríki rétt um daga Trjóumanna. En um ár eða aldabil veit þar enginn maður neitt. Önnur eins speki og þessi fullyrt með hik- og hispurslausri einurð, gefur grun um, að eitthvað fleira muni staðhæft að ástæðulitlu í nefndaráliti minni hlutans.
Minni hlutinn heldur því fast fram í áliti sínu, að vér séum af Dönum innlimaðir í Danmörku með stöðulögunum frá 2. jan. 1871, og að í þeirri innlimun verðum vér að dúsa, hvort sem vér viljum eða ekki. Af þessu dregur svo minni hlutinn þá ályktun, að vér eigum engan annan kost en að samþ. þetta millilandanefndarfrumv. til þess að losa oss við stöðulögin, og — innlima oss þar með sjálfir, en sú innlimun sé tilvinnandi, af því sú innlimun sé með nokkru betri kostum en innlimun Dana á oss 1871.
Hér skilur meiri hlutann og minni hlutann. Vér viljum ekki samþ. neitt það sjálfir, sem skert geti rétt vorn þann, er vér teljum oss eiga, en minni hlutinn álítur oss réttlausa, og vill því taka það, sem fæst.
Það má auðvitað lengi deila um það hver réttur okkar er að lögum. En fyrir mér er hann skýr, ljós og ótvíræður. Frá því er skýrt í stuttu máli í nefndaráliti voru, hvern rétt meiri hlutinn telur oss eiga.
Minni hlutinn vill ekki byggja mikið á því, hver þjóðréttur vor sé, samkvæmt sáttmálum, lögum og rökum sögunnar. Oss er það kunnugt að fornu og nýju frá því er saga minni hlutans hófst. Hann vildi byggja alt á náttúrlega réttinum svo kallaða. Enginn neitar því að hann sé góður nái honum. En hann er svo beztur að pappírarnir séu í reglu, að skjöl og skilríki sé til fyrir eigninni. Með hinum sögulega rétti vorum er hinn náttúrlegi réttur vor einmitt trygður. Vor eðlilegi þjóðréttur, að vera frjálst ríki og fullvalda þjóð, er einmitt nákvæmlega vor forni réttur, sem ríkisskjöl vor, hinir gömlu sáttmálar, eru hlaðin um sem varnargarður. Þeir, sem þá heimta hinn náttúrlega rétt oss til handa, en þykjast ekkert vilja hafa með vor fornu skjalföstu og sáttmálum vörðu réttindi að gera, krefjast þó að vísu hins forna réttar vors, þó að þeir annaðhvort viti það ekki eða loki fyrir því augunum. Það er eins og þeir haldi það gangi betur að sækja þrætulandið eignargagnalaust. Þar skilur oss og þá. Vér viljum sækja vorn náttúrlega rétt, vorn forna þjóðarrétt, en vér viljum styðja þá sókn og efla með öllum þeim lögheimildum og eignargögnum, sem vér eigum til og sýna, að þrætulandið sé vor eign. Menn skulu því vara sig á því, að gera lítið úr gildi hinna fornu ríkisskjala vorra. Fyrir mótstöðumenn vora, Dani, eru þau sá örlagagarður, sem þeir hafa aldrei komist yfir og munu aldrei komast yfir. Það eru þau, sem þeir verja stórfé til að reyna að hrekja og vefengja. Þar þykir þeim alt á ríða.
Meðvitundin um það, að vér eigum í raun og veru lögum og heimildargögnum varinn rétt fullvalda þjóðríkis ofan úr öldum, hefir einnig haft og hefir enn mikla þýðingu fyrir oss. Það hefir gefið þjóð vorri það þrek í baráttunni fyrir réttindum sínum og lyft henni til þeirrar djörfungar, sem vanséð er, að hún hefði annars haft. Meðvitund þessi er góð, að vér höfum aldrei glatað þeim réttindum, er ríkisgögn vor frá þeim tímum, sem vér gengum undir konungsvaldið sýna að oss voru þá skilin, heldur varið þau eftir megni til þessa dags fyrir löglausri ágengni og áleitni útlends valds.
Vér getum því nú komið fram upplitsdjarfir, að vér höfum ekki spilað þessum arfi frá forfeðrunum úr höndum oss. Vér erum ekki að heimta neitt af Dönum, sem þeir eiga, vér erum ekki að seilast á þeirra rétt, ekki að biðja um neitt, sem aðrir eiga, vér erum ekki að rekast eftir neinu óskilafé, — vér erum að heimta vitafé, eign vora, sem vér sýnum lagagögn fyrir, að vér eigum.
Danir þykjast vilja viðurkenna hinn náttúrlega rétt vorn, en hinn forna þjóðrétt vorn vilja þeir ekki kannast við. En af hverju? Af því að sá náttúrlegi réttur, sem þeir telja oss beri, er svo langtum lítilfjörlegri en sá réttur, er hin fornu ríkisskjöl vor segja til. Allir þekkja þann rétt, sem þeir hafa skamtað oss með stöðulögunum 1871 fyrir 38 árum. Og hver er sá náttúrlegi réttur, sem þeir vilja nú unna oss, hversu hátt rís hann? Hérna er verðlagsskráin, frumv. millilandanefndarinnar, sem þjóð þessa lands hefir nú einnig metið, og að verðleikum.
Þess hefir lítt verið gætt í sambandi við þetta mál, hvernig hin önnur eylönd í norðurhöfum en Ísland gengu í öndverðu undir Norðmannakonung, og sé eg þó ekki betur en það geti verið eftirtakanlegt til samanburðar við Íslendinga. Að vísu ganga þau öll undir konungsvaldið hvert á sinn hátt, en þar munar stórum, hve Íslendingar gera það mennilegast, og þeim er ábyrgð þess ljós, sem þeir eru að gera. Þeir eru og þeir einu, sem gera skriflegan sáttmála, og eru sér þess meðvitandi, að þeir sé fullveðja samningsaðilar.
Orkneyjar og Hjaltland komust undir Noregskonung á dögum Haralds harðráða nær 880. Kastaði hann eign sinni á öll óðul í eyjunum, enda þóttust Noregskonungar eiga þau æ síðan, og léðu þau jörlum sínum, Eyjajörlum, og gekk jarlsdæmið í erfðir.
Færeyingar gengu Noregskonungi á hönd á dögum Ólafs helga. Hann var yfirgangsmaður og áleitinn eftir því að ná bæði Íslandi og Færeyjum undir sig, enda höfðu Noregskonungar alt frá dögum Haralds hárfagra við og við verið að sæta lagi að ná valdi yfir þessum löndum. Allir þekkja Una hinn danska, sem Haraldur sendi hingað á að gizka um 890 og ætlaði að gera að jarli hér, en landsmenn gerðu þann aðsúg að sem nægði. Enginn lá þó á slíku lúalagi, að reyna að fleka Íslendinga, sem Ólafur konungur helgi, og það var hann, sem vildi fá Grímsey 1024 að gjöf, þegar Einar Þveræingur varð fyrir svörum á alþingi og ónýtti það ráð konungs með hinni minnilegu tölu, sem allir kannast við.
Færeyingar gengu Ólafi konungi á hönd 1024 með þeim skildaga, að þeir skuldbundu sig til »að halda þau lög, þann rétt, er hann setti þeim, og skattgildi það, er hann kvað á«. — Munurinn á afsali þeirra og sáttmálum vörum við konung er því gífurlegur. Á Færeyjum verður konungurinn strax einvaldur, en vér áskiljum oss löggjafarvald auk margs annars. Konungur ákveður ótiltekið skatt þeirra, svo háan sem honum sýnist, en vér einskorðum sjálfir, hvað vér viljum í láta af hendi rakna. Færeyingar ganga næstum undir konungsvaldið eins og kindur, en Íslendingar vaka yfir rétti sínum eftir föngum með því að binda konung með skriflegum sáttmála. Síðan dauða Þrándar í Götu 1035, sem var eini þjóðrækni maðurinn í eyjunum, er nokkuð kvað að, hafa Færeyingar verið óslitið undir erlendu valdi.
Grænlendingar gengu Noregskonungi á hönd á dögum Hákonar gamla, eins og Íslendingar. Sama árið, sem hann sendi Henrik biskup að Hólum til Íslands (1247) til þess að reka þar erindi sín um vald yfir landinu, þá sendi hann einnig annan biskup til Grænlands, Ólaf að nafni, án efa í sömu erindagerðum, og hefir hann víst verið dyggur snati konungs, því að árið áður en Íslendingar gengu konungi á hönd átti Ólafur þessi einnig erindi hingað og dvaldi hér eitt ár, áður en hann færi til Grænlands. Árið 1257 sendi Hákon konungur þrjá af trúnaðarmönnum sínum til Grænlands, og voru þeir þar í fjögur ár, og höfðu þá unnið svo ósleitulega, að þá gengu Grænlendingar undir konung (1261). Enginn er til sáttmáli af Grænlendinga hálfu við konung, en Sturla lögmaður Þórðarson segir svo frá þessum atburði í Hákonarsögu (311. kap.):
»Þetta haust kómu þeir útan af Grænlandi Oddr af Sjöltum, Páll Magnússon, Knarrar-Leifr. Þeir höfðu verit útan fjóra vetr; þeir sögðu þat af Grænlandi, at þeir hefði gengit undir skattgildi, svá at öll manndráp skyldi bæta við konginn, hvárt er drepnir væri norrænir menn eða grænlenzkir, ok svá hvárt sem þeir væri drepnir í bygð eðr Norðrsetu. Svá ok þó þeir sæti alt norðr undir stjörnuna, þá skyldi konungur eigi at síður taka þegngildi eptir þá«.
Þó að Grænlendingar — sem þá voru Íslendingar, eins og vér erum — sýnist hafa gengið nokkuru mennilegar undir konungsvaldið en Færeyingar gerðu fyrrum, er munurinn á þeim og Íslendingum um þetta efni svo stór, að þar er engu saman að jafna. Sáttmálar vorir tryggja oss fullveldi yfir öllum málum vorum, og alt konungssamband laust, ef út af ber, en hin löndin tryggja sér ekki neitt, og hjá Færeyingum er full uppgjöf á öllum rétti.
Enginn maður hefir skrifað jafn viturlega og ljóst um þetta málefni vort sem prófessor Gjelsvik, norrænn maður. Er hann talinn einn af beztu lögfræðingum Norðmanna. Hann álítur þjóð- og ríkisrétt vorn enn alveg óskertan til þessa dags. Vér þurfum því ekki að koma fram sem beiningamenn fyrir Dani. Vér eigum einungis að heimta það, sem vér eigum og þeir halda fyrir oss.
Báðir flokkar hér á þinginu eru auðvitað sammála um það, að vér eigum að ná sem beztum rétti oss til handa að verða má, en um veginn greinir á að takmarkinu. Minni hlutinn leyfir sér og nú að fullyrða furðu mikið um það, hvað fáanlegt sé. Er það svo að skilja, má eg spyrja, að hinn fyrverandi ráðherra hafi fengið vitneskju og vissu um það, að óhætt væri að setja orðið »ríki« fyrir »land« í 1. gr. frv. og að fella megi í burtu »Det samlede danske Rige«? Hefir hann fengið tilsögn um það, að óhætt væri að breyta frumv., en leynt þingið því? Eða hvaðan kemur minnihlutanum sú speki að þessar breytingar séu frekar fáanlegar en breyt.-till. meiri hlutans? Þegar forsetarnir töluðu við Neergaard forsætisráðherra nú í utanför sinni, voru engar breytingar fáanlegar. Hvaðan er þá minnihlutanum komin sú vizka, að breytingar hans fáist samþyktar af Dönum? Eða er minnihlutinn hér að fara með vísvitandi ósannindi framan í öllum þingheimi? Eg krefst þess nú í nafni alls landslýðs, að minnihlutinn sýni það hér á þingi og sanni vafningalaust, hvað hann hefir fyrir sér um þessar staðhæfingar sínar.
Skýrsla sú um samtal forsætisráðherrans og ráðherra Íslands nú síðast er áreiðanleg í öllum greinum, og hefir meðal annars staðið 16. þ. m. Í »Þjóðólfi«, blaði forseta vors, sem sjálfur var áheyrsla þess samtals, og allir vita, hversu réttorður sá maður er. Þar er það skýlaust sagt, að ekki sé það tilætlunin með millilandafrv., að íslenzk mál séu þar með laus úr ríkisráði Dana. Ekki einungis það er því fengið með frumv. þessu, og hafa þó ýmsir haldið því fram, að svo væri og aðrir bygt á því fylgi sitt við frv.
Það sem vér fáum með millilandanefndarfrumv. er þannig vaxið, að ef vér göngum að því óbreyttu, þá játum vér af oss rétt, sem vér höfum haft til þessa dags, og fullveldi vort engu að nær. Verði það hins vegar samþykt með breyt.till., meiri hlutans, þá er fullveldi voru borgið og engum þjóðréttindum landsins afsalað.