28.04.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 725 í B-deild Alþingistíðinda. (1268)

5. mál, samband Danmerkur og Íslands

Framsögumaður minni hlutans (Jón Ólafsson):

Herra forseti! Eg ætla að biðja deildina að taka vægt á mér, þótt eg fari ekki langt út í ræðu hv. frsm. meiri hl. — Eg er illa fyrirkallaður, þreyttur, hef staðið í striti við búferlaflutning og ekki farið úr fötum í nótt.

Það var þá fyrst í ræðu háttv. frsm., er hann sagði að meiri hlutinn vildi gera þá breyting á frumv., að Danir færu með sameiginleg mál »eftir umboði voru« — sagði, að engin slík ákvæði stæði í frv. stjórnarinnar. Annað tveggja er, að hann hefir verið svo sokkin niður í gömul skjöl, að hann hefir engan tíma haft til að lesa frv., eða þá stórlega yfirsést við lesturinn, líkt og öðrum gömlum doktor, þegar hann les biblíuna. Því þetta stendur einmitt í 6. gr. Þar stendur, að Danir fari með þessi mál »fyrir Íslands hönd«, og það er að eins með því að vér samþykkjum þessi lög, að vér veitum þeim umboð til þessa. Sé þetta ekki að fara með mál »eftir umboði«, þá skil eg ekki mælt mál.

Það næsta, sem eg tók eftir, var það, að hann vildi gera lítið úr brtill. minni hlutans; þótti honum þær allar einkis virði nema sú fyrsta. »Sínum augum lítur hver á silfrið«. Allar brtill. minnihl. eru orðabreytingar til þess gerðar, að gera það ótvírætt, sem andstæðingar þess höfðu talið tvírætt, því höfum vér og breytt hinum danska texta frumv. líka, þar sem þess var þörf til að taka af allan efa um samræmi textanna á báðum málum. Auðvitað álitum vér, að alt það, sem brt. vorar fara fram á, hafi áður verið fólgið í frumv., en andstæðingar þess voru á öðru máli, og því vildum vér velja það orðalag, er þeir misskildu ekki. Einmitt af því, að Neergaard og aðrir danskir nefndarmenn eru oss samdóma um, að þessi sé sá skilningur, sem þegar lá í frumv., álíta þeir þetta orðabreytingar einar. Og því er engin mótsögn í því, að Neergaard segi, að Danir gangi að eins að orðabreytingum, og vér segjum, að þeir gangi að þessum breytingartill. vorum. Það samrýmist vel, er þeir telja þær að eins orðabreytingar, samkvæmar því, sem áður lá í frumv. En þar fyrir hljóta þær samt að vera mikilsverðar efnisbreytingar í augum þeirra manna, sem öðruvísi skildu nefndarfrumv. áður.

Háttv. framsm. meiri hlutans (J. Þ.) spurði, hvaðan oss kæmi sú vitneskja, er nefndarálit vort getur um, að vér teljum oss geta fullyrt, að breytingar vorar mæti eigi mótspyrnu at Dana hálfu. Eg skal lýsa hér yfir því, ekki að eins í nafni minnihl. nefndarinnar, heldur í nafni vor 15 þingmanna í báðum deildum, sem fylgjumst að máli um frv. þetta, að vér höfum þá vitneskju svarta á hvítu, og má framsm. meirihl. (J. Þ.) standa á sama, á hvern hátt vér höfum fengið hana. Eg er þess fullviss, að þegar eg lýsi yfir því hér í áheyrn alls þingheims, í nafni vor allra 15, og legg það undir drengskap vorn, að vér hermum hér rétt frá, þá mun hvorki háttv. framsm. meirihl. (J. Þ.) eða neinn maður annar rengja orð vor allra um þetta mál.

Eg get sagt sama um nefndarálit meirihl., sem hv. framsm. hans (J. Þ.) sagði um nefndarálit vort, að það er »einkennilegt« — eða eg vildi öllu heldur segja fáránlegt. Það er ekki annað en einu sinni enn á ný upp soðin súpa af hinum mögru, dauðu beinum í beinagrindinni »Ríkisréttindi Íslands« og nokkrum skammrifum úr gömlum þjóðfundarskjölum og þingskjölum, og synd er að segja það, að súpan sé lystug. Nefndarálit meirihl. er svo leiðinlegt, að ýmsir háttv. þingmenn úr báðum flokkum hafa fullyrt við mig, að eg muni vera eini maðurinn, auk höfundarins sjálfs, sem hefir haldið út, að lesa það alt, með fylgiskjölum. Og full í lagt mun það vera, að l½ blaðsíða í öllu því langa máli snúi sér eiginlega beinlínis að efni frumvarps þess, sem nefndin fékk til meðferðar.

»Einkennilegt« er það og, að í 9 manna nefnd, með 6 manna meirihl., þá fær höfundur frumv. og framsm. meirihl. (J. Þ.) eina þrjá meðnefndarmenn sína til að verða sér samdóma um röksemdaleiðslu sína: tveir hygnustu mennirnir (þm. N.-Ísf. (Sk. Th.) og 1. þm. Skagf. (Ól. Br.) eru honum ósamdóma. Háttv. þm. N.-Ísf. (Sk. Th.) vill byggja á sama grundvelli, sem minni hlutinn — þótt kynlegt sé —, og háttv. 1. þm. Skagf. (Ól. Br.) virðist í áliti sínu um frv. stjórnarinnar svífa einhversstaðar í lausu lofti mitt á milli meirihl. og minnihl. Honum þykir framsm. (höf. meirihl. nefndarál.) gera of lítið úr þeim réttindum, sem stjórnarfrumv. gefur okkur, og vill byggja meira á þeim, en gert er í nefndaráliti meirihl.

Það er því svo langt frá því, að hann geri lítið úr þeim réttindum, sem frumv. veitir, að eg ímynda mér, og þykist viss um, að ef þær br.till., sem minnihl. nú hefir komið með, hefði legið fyrir í sumar, áður en hann bauð sig fram, þá hefði hann boðið sig fram, sem frumvarpsmaður, þótt hann sé nú orðinn svo rígbundinn flokksböndum, að hann hafi ekki kjark til þess að fylgja minni hlutanum að máli.

Allur vefur háttv. framsm. meirihl. (.1. Þ.) um, að það væri rangt, sem sagt er í nefndaráliti voru, að persónusamband eitt hefði aldrei og gæti ekki átt sér stað í 2 ríkjum með fullri þingstjórn er bull, og alt, sem hann sagði um það lýsti að eins vanþekking hans á sögunni, og var — tómt bull og misskilningur og mishermi. Það sem sagt er í nefndarál. voru er rétt í alla staði og verður aldrei hrakið. Dæmið af sameining Noregs og Íslands sannar ekkert, af því að þar var konungur, eins og háttv. framsm. meirihl. (J. Þ.) játaði, einvaldur í hermálum og utanríkismálum — hann sagði í Noregi; eg segi í báðum löndunum. En þótt hann hefði verið það í Noregi að eins, þá var það nóg. Í nefndaráliti voru stendur: »þar sem slíkt samband hefir átt sér stað, þá hefir konungur verið

einvaldur í báðum löndunum, eða öðru að minsta kosti, í hermálum og utanríkismálum«.

Eg hefi áður bent á það í ræðu hér í deildinni, að um 1262 voru engin utanríkismál til hjá oss nema verzlunarmál. Svona var, þegar Íslendingar gengu konungi á hönd. En 5 árum síðar, þá gerir konungur samning við aðrar þjóðir um verzlun landsins. — Þetta var árið 1269. — 1302 bannaði Hákon Noregskonungur þýzkum kaupmönnum að verzla við norðurhluta Noregs og á Íslandi.

Mætti nefna fleiri dæmi því til sönnunar, að konungur hafi verið algerlega einvaldur í utanríkismálum. — Þá nefndi hann Kongó-ríkið, sem dæmi upp á »Personal-Union«; en þar var konungurinn einvaldur í öllum málum. Svona er þekking þessa hv. framsm. meirihl. (J. Þ.) á sögunni! Hinum dæmunum (Hannover — Bretland — o. s. frv.) er alveg eins farið. Konungurinn var t. d. Í Hannover einvaldur í öllum málum allan þennan tíma, þar til 1833, og einvaldur þar í utanríkismálum og hermálum til 1837, að sambandið hætti.

Þá vildi háttv. framsm. meirihl. (J. Þ.) sýna fram á, að persónusamband gæti komizt á við konungserfðir í löndum með fyllilega þingbundinni konungsstjórn, og tók til dæmis, ef niðjar Friðriks VIII. dæju út í Danmörku, þá væru niðjar Georgs Grikkjakonungs réttbornir til ríkis í Danmörku, eins og í Grikklandi. Hann vissi það ekki, fyrri en eg skaut því að honum, að Georg varð að afsala sér og sínum erfingjum öllum erfðarétti til konungdóms í Danmörku, þá er hann varð konungur á Grikklandi. Hann hefir heldur ekkert hugboð um, að samkvæmt stjórnarskrá Danmerkur, þá getur Danakonungur ekki verið konungur í neinu öðru ríki án samþykkis ríkisþings Dana.

Þá vildi háttv. framsm. meirihl. (J. Þ.) bera brigður á það, að Danmörk væri elzta konungsríkið í Norðurálfunni, en því er ekki til neins að mótmæla, að Danmörk hefir verið óslitið konungsríki lengur en nokkurt annað ríki í Norðurálfunni. Bretland hefir, eins og allir vita, á sögulegum tíma lotið Danaveldi, en Danmörk aldrei síðan sögur hófust neinu öðru ríki.

Þegar uppkastið kom hingað til landsins í fyrra, þá voru allir fagnandi því í fyrstu, enda hafði það í sér alt, sem þingmálafundir höfðu haldið fram. — Þótt flokkurinn ekki sjái neina brýna nauðsyn til þess, að breyta frv., þá vill hann þó gera það til samkomulags, ef auðið væri, að koma með nokkrar breyt.till. Í þá átt, að skýra orðalagið á frumv. Það er þá 1. gr., að í stað orðanna »frjálst og sjálfstætt land« komi: »Ísland er frjálst og sjálfstætt ríki«. Við sömu grein, að orðin: »Danmörk og Ísland — — — veldi Danakonungs« falli burt, eða, að orðin haldist í íslenzka textanum, en í hinum danska komi: »Det danske Monarki«.

Þá tók háttv. framsm. meirihl. (J. Þ.) ómjúkt á breyt.till. vorum við 3. grein, 1. tölul. Orðin: »engan þjóðarsamning má gera«, og svo framvegis.

Þá höfum við og lagt til, að í staðinn fyrir »er Ísland snertir sérstaklega, skal þó gilda« komi: »Er snertir íslenzk mál, þau er ekki er með farið sem sameiginleg samkvæmt þessum lögum, skal gildur vera«. Og verð eg að játa, að eg skildi ekki ummæli hv. framsm. meirihl. (J. Þ.) um þetta atriði. Eftir orðalagi breyt.till. vorrar, þá nær samningaréttur Dana við útlendar þjóðir ekki til vor í neinum málum fyrir utan dönsk hermál og konungsættina — ekki t. d. til verzlunar- og siglinga, sem ekki eru sameiginleg mál. Þá er Danir gera samninga við aðrar þjóðir, ná þeir samningar því eigi til vor, nema vér samþykkjum þá sjálfir.

Þá er breyting við 6. gr., að á eftir 3. gr. bætist við og »9. gr.« til þess, að sýna það, að þau mál séu ekki sameiginleg lengur, en meðan um semji. Þá er í 7. gr., að fyrir »landssjóður« komi: »ríkissjóður« samkv. 1. gr.

Því hefir verið haldið fram af meiri hlutanum, að ef ágreiningur risi út af ákvæðum í 9. gr., þá mundi svo geta farið, að ákvæði hennar gætu orðið okkur til tjóns. Til þess að taka af allan efa í þessu efni, þá höfum við komið með breyt.till. þannig, að aftan við greinina bætist »alt samkvæmt tillögu þeirri, sem fram er komin, eða ef tillögur eru framkomnar frá þingum beggja ríkjanna, þá samkv. þeirri er lengra fer«. —

Það sem aðallega skilur leiðirnar, er því það, að meiri hlutinn vill taka þær einar breyt. góðar og gildar, sem hann veit fyrirfram, og játar að hann viti, að enginn kostur er á að fá samþ., en við minni hlutinn viljum gera þær einar breyt., sem kostur er á og tryggja sem bezt sjálfstæði okkar, og það hugsa eg að hafi vakað fyrir þjóðinni og vaki enn. Við erum þess vissir, að háttv. meiri hluti eða þeir af honum, sem engar breyt. vilja, aðrar en þær sem ónýta málið — eg segi ekki að þeir séu margir, en þeir eru til — þeir geri það einungis af því, að þeir vilja ekki unna landinu meira sjálfstæðis en það hefir. En hinir eru þó nokkrir, það er eg viss um, sem, ef þeir hefðu séð breyt. minni hlutans fyrir kosningarnar, hefðu þá sagt: »nú býð eg mig fram sem frumv.mann, en ekki sem andstæðing«. En þeir munu þó vera flestir, sem hyggja, að þeir haldi við gömul söguleg réttindi, sem þeir vilja ekki fyrirgera. En hver eru þessi réttindi? Hver hefir viðurkent þau? Mér er ekki kunnugt um, að þau séu viðurkend af neinu ríki. Hvað skilur þá flokkana? Jú, það að hafa sameiginleg hermál og utanríkismál við Dani. Hvaða þýðingu hafa þá þessi mál fyrir okkur? Hvaða þýðingu hafa hermálin? Jú, þau hafa þá þýðingu, að Danir taka að sér að verja okkur eftir megni án nokkurs framlags frá okkar hálfu; með öðrum orðum, Danir skuldbinda sig til að verja okkur eins og sjálfa sig. En það var einmitt eitt at því, sem freklegast var látið klingja við almenning í sumar í sumum kjördæmum, einkum hinum afskektari, að nú ætti að fara að gera okkur herskylda — og veslings bændurnir, sem voru svo fákænir að trúa lyginni, sögðu: »Ekki held eg vilji stuðla til þess að börn okkar og afkomendur verði send suður til Danmerkur til þess að slátra þeim þar«, og svo greiddu þeir atkv. á móti frumv. þessu. Slíkar og þvílíkar ástæður hafa verið færðar á móti frumv. — og meira að segja: eg og fleiri þm. höfum heyrt framsm. meiri hlutans (J. Þ.) segja kjósendum sínum hér í Reykjavík þessi ósannindi á almennum fundi hér í bænum!

Og þá eru nú utanríkismálin. Mér er ekki kunnugt um, að við höfum önnur utanríkismál en samninga við önnur ríki um verzlunarmál — og þegar engan þjóðarsamning má gera, er þau mál snertir, nema hann sé samþ. af oss, já, þá sé eg ekki hvaða ógagn það ákvæði getur gert okkur.

Ummæli blaðrara eins og prófessors Gjelsvik og hans nóta í útlendum blöðum, þarf eg ekki á að minnast — greinir, sem að nokkru leyti hefir verið upplýst um, að voru pantaðar af »Ísafold«.

Frumv. þetta gerir Ísland að frjálsu og óháðu ríki í sambandi við annað ríki um konungserfðir og tvær tegundir mála — utanríkismál og hermál — og jafnrétthátt Danmörku í öllu. Nú erum vér, hvort heldur með réttu eða röngu, »óaðskiljanlegur hluti Danaveldis«, en með þeirri einni réttarstöðu, sem stöðulögin veita. Vér erum, hvort heldur með réttu eða röngu, háðir alveg Danmörku í öllum málum. Þessi ein réttarstaða vor er viðurkend af öllum þjóðum. Ettir frv. yrðum vér af öllum viðurkendir að vera sjálfstætt ríki.

Það hefir mikið verið talað um innlimun bæði hér á þingi og utan þingsins. En eg vil segja, að þeir góðu herrar, sem nú sporna af alefli móti þessu sjálfstæði voru eftir frumv., þeir séu einir réttnefndir innlimunarmenn, því að þeir vilja halda oss í þeirri innlimun, sem vér erum í. En vér, sem viljum taka frumv. og afla landi voru þannig fulls sjálfstæðis og ríkisréttinda, vér erum þeir sannnefndu sjálfstæðismenn.