28.04.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 765 í B-deild Alþingistíðinda. (1282)

5. mál, samband Danmerkur og Íslands

Framsögumaður minni hlutans (Jón Ólafsson):

Herra forseti! Háttv. frsm. meiri hlutans sagði, að frumvörpin 1867 og 1869 hefði ekki átt að leggjast fyrir ríkisþingið, heldur fyrir konung einan. Þetta eru staðlaus ósannindi. Það þarf ekki lengra að leita en í frv. sjálf í alþ.tíð. þeirra ára, til að sjá, hvor okkar fer með rétt mál, og hvor með rangt.

Allir vita líka, að konungur hefir engan rétt til að semja við okkur um afstöðu Íslands og Danmerkur, nema með samþ. ríkisþingsins. Enginn annar en einvaldskonungur gæti undirskrifað slíka samninga án samþykkis ríkisþingsins. Það ætti því naumast að þurfa að endurtaka það, að ríkisþingið hefir samþykkisrétt í þessu máli alveg eins og vér. Ástæður hv. þm. N.-Ísf. (Sk. Th.), eru að eins þær, að Danir muni láta undan. Slíkt er auðvitað að eins út í bláinn.

Háttv. þm. N.-Ísf. kannaðist við orð þau, er eg las úr ræðu hans í alþt. 1907. En höfum vér nokkurn veg nema sannfæringarveginn eða samkomulagsleiðina?

Og það er engu spilt, þó við samþykkjum, að láta Dani fara með utanríkismál okkar og hervarnir, þangað til, ef sá tími kemur, að við verðum einfærir um að annast þau sjálfir algerlega. Það er alt af auðið að ná þeim í vorar hendur, þá er vér höfum bolmagn til þess (og fyrri höfum vér ekki við þau að gera); sá vegur raskast ekki með neinu frumv. eða neinum lögum. Sami háttv. þm. sagði, að ef við hefðum nokkur mál sameiginleg, þá létum við fullveldi okkar af hendi. Danir geta eftir þessu frumv. ekki ráðið nema í sameining við oss sumum málum. Láta þeir þá ekki fullveldi sitt af hendi?

Þeir hafa þó nú einir rétt til að fara með öll utanríkismál alls Danaveldis; vér höfum engan rétt nú í þeim málum. Hvorir takmarka þá fremur fullveldi sitt, vér eða Danir? Hvorugir afsala sér því, en báðir ganga að því, að framkvæma það í sameiningu.

Vér missum ekkert en öðlumst alt.