03.03.1909
Efri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 369 í B-deild Alþingistíðinda. (129)

6. mál, aðflutningsgjald

Steingrímur Jónsson:

Eg er samdóma hæstvirtum ráðherra um það, að málinu ber að flýta sem mest, og ætti helzt að vera tilbúið í þessum mánuði. En ákvæði 3. gr., sem miðar gildi laganna að nokkru við 24. febr., er svo hart, að deildin þarf að hafa nægan tíma til að hugsa sig vel um, áður en slíkt ákvæði verður samþykt. Það þarf að athuga málið svo sem kostur er á, og helzt í nefnd. — Það er fleira í frumvarpinu en þetta ákvæði, sem þarf athugunar við, t. d. líka 2. málsgr. aftan við 5. tölul. 1. gr. Þar er ætlast til að ef vínföng þau, sem falla undir 2., 3. og 4. tölul. koma í ílátum, sem rúma minna en pott, þá skuli greiða jafnan toll af 3 pelum, sem potti í stærri ílátum. Þar af leiðir t. d., að greiða verður 1 kr. í toll af einni brennivínsflösku. Það er ekki svo að skilja, að mér þyki 1 kr. of hátt gjald, en hér kemur fram misrétti á móts við aðrar áfengistegundir, þar sem tollur af 3 pelum af brennivíni hækkar frá 39 aurum og upp í 1 kr., en af konjaki, whisky o. fl. úr 78 aur. upp í 1 kr. Slík hækkun er ósanngjörn, því að brennivínsnautn mun ekki þeim mun skaðlegri en nautn annara áfengra drykkja, að svona mikill mismunur á tollhækkuninni gæt orðið réttlættur frá því sjónarmiði.