28.04.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 821 í B-deild Alþingistíðinda. (1301)
5. mál, samband Danmerkur og Íslands
Jón Magnússon:
Eg skil ekki, hvernig háttv. þm. Dal. (B. J.) getur búist við því, að við minni hlutinn verðum þeim samferða, þar sem þeir hafa sýnt það ljóslega með allri framkomu sinni á þinginu í ár, sérstaklega í nefndinni, að þeir hafa alls ekki samvinnu við minni hlutann viljað hafa.