26.02.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 832 í B-deild Alþingistíðinda. (1314)

6. mál, aðflutningsgjald

Framsögumaður (Jón Ólafsson):

Síðan nefndarálitið kom út, hefir nefndin komið sér saman um breyt. í málinu og leggur því til sem breyt.till., að aftan við 3. gr. stjórnarfrumv. bætist: þó skal greiða aðflutningsgjald, er ræðir í 1.—5. tölul. 1. gr., af vörum þeim er flytjast til landsins eftir 24. febr. 1909. Annars leggur nefndin það til, að frumv. sé samþ. að öðru leyti og hefir fallið frá að láta tollhækkunina ná til allra vínbirgða, sem fyrir liggja, er lög þessi öðlast gildi, því að slíkt gæti lent á mönnum, sem fengið höfðu birgðir sínar fyrir mörgum árum. — Það er engin minsta ástæða fyrir kaupmenn eða aðra, að halda því fram, að þessi hái tollur geri það að verkum, að þeir geti ekki keypt eins í stórkaupum, því að þeir þurfi að borga tollinn. Það þurfa þeir alls ekki strax, ef þeir vilja hagnýta sér lögin um tollgeymslu. Nefndin vonar, að mál þetta með þeim breyt., sem þegar eru gerðar, fái góðan byr hjá háttv. deild.