26.02.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 835 í B-deild Alþingistíðinda. (1319)
6. mál, aðflutningsgjald
Framsögumaður (Jón Ólafsson):
H. þm. Vestm. (J. M.) heldur, að ekki náist tilgangur nefndarinnar, vegna þess, að kaupmenn muni ekki hafa efni á, að birgja sig til fleiri ára. Eg held
að framleiðendur mundu verða fúsir á að veita lán, einkum og sérstaklega þegar þannig stendur á, eða senda vínið í umboðssölu. Það er rétt, að birgðirnar rýrna við geymsluna, en þær batna líka mjög mikið við að liggja á tré. Það væri viðurhlutamikið ettir dómi háttv. þm. Vestm. (J. M.), að láta lögin verka mikið aftur fyrir sig. En eg vil taka það fram, að tillagan um daginn, var varhugaverðari sökum þess, að hún gat breytt rétti manna.
Þegar tekið er tillit til þessa verður líkt ástatt með þetta, eins og var með bittertollinn á sínum tíma.