01.03.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 839 í B-deild Alþingistíðinda. (1322)

6. mál, aðflutningsgjald

Jón Þorkelsson:

Eg vil leyfa mér að koma fram með litla breyt.till. (á þgskj. 70) við frv. þetta frá 2. umr. Hún viðvíkur niðurlagi þess. Þar er sem sé sagt, að lögin gildi frá öskudeginum núna, þótt staðfest verði þau vitanlega ekki fyr en í vor.

Þetta er ósanngirni, og bein víti lögð á þá menn, er fyrir þessu verða.

Það er gamalt lögmál, að svo skal um hvert mál fara sem þá ganga lög í landi. — Ef út af því bregður, þá á eitt yfir alla að ganga og lögin t. d. að vera miðuð við nýár eða við staðfesting konungs.

Skal eg ekki halda þessari breyt.till. frekar fram en hverju öðru sanngirnisatriði, sem altaf er réttmætt.