01.03.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 839 í B-deild Alþingistíðinda. (1323)
6. mál, aðflutningsgjald
Framsögumaður (Jón Ólafsson):
Að því er snertir þessar 2 breyt.till., er nú hafa komið fram hér í deildinni, þá get eg lýst yfir því, að nefndin mun ekki vera mótfallin hinni fyrri (frá 2. þm. Eyf. St. St.).
Það er vitanlega ekki rétt að draga undan drykk, sem er 6½—9% styrkleika — eins og »súrsaftin«, sem hinn nafnkunni eiturbyrlari Kína-Lífs-Petersen býr til og selur hingað upp.
Um hina síðari breyt.till., frá háttv. 1. þm. Rvk. (J. Þ.) er alt öðru máli að gegna, því að hún er í rauninni engin breyt.till.
Þar sem farið er fram á, að lögin öðlist þá fyrst gildi, er konungur hefir staðfest þau, þá táknar það ekki annað en það, að feld sé nefndartill. og stjórnarfrv. sé samþ. óbreytt.
Hún er því alveg óþörf. Vona eg að háttv. deild fallist á þessar aths. mínar, enda var hún mjög svo fylgjandi nefndarfrv. við síðustu umr., og var þá nægur tími til umhugsunar, enda deildin á eitt sátt um að hafna stjórnarfrv. óbreyttu.
Till. hins háttv. 1. þm. Rvk. (J. Þ.) getur naumast kallast annað en afturganga, sem kveða ætti niður.
Sé eg ekki nauðsynlegt að ræða þetta mál frekar nú, það var gert ítarlega við síðustu umr. Hefi eg ekki orðið var við neinar nýjar ástæður, er raskað geti því er þá var afráðið.