26.04.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 882 í B-deild Alþingistíðinda. (1370)

8. mál, laun háskólakennara

Sigurður Sigurðsson:

Eg þarf engu að svara hinni mögru ræðu hins hv. 1. þingm. Rvk. (J. Þ.). Hún var eintómir útúrdúrar og hnútur, en ekkert orð af viti mælt eða sanngirni, en slíkt er engin ný bóla hér í deildinni. — Eg vil minna á það, að alt af má fjölga kennurum síðar ef þarf, og sníða þannig kostnaðinn eftir þörfinni. — Batni efnahagur þjóðarinnar er ávalt innan handar, að hækka launin.

Viðvíkjandi aukakennaranum við lagaskólann hefi eg heyrt, að í ráði sé, að ráða til þess starfa á næsta vetri, mann, sem hefir annan starfa á hendi. Á sama hátt mundi því einnig hagað, að því er snertir aukakennarana við háskólann. Þeir mundu flestir hafa önnur störf jafnhliða, er launuð væru á einn eður annan hátt. Öðru hefi eg eigi að svara; en eg vil geta þess, að þar seni maður þessi segir, að eg hafi verið að halda ræðu fyrir kjósendur mína, þá eru það manna dæmi, og sagt er, að háttv. 1. þingm. Rvk. (J. Þ.) hafi þurft þess mjög við um eitt skeið, og muni þurfa þess síðar, ef að vel eigi að fara fyrir honum.

Ummæli háttv. 1. þm. Rvk. (J. Þ.) um smjörbú og sláturhús koma þessu máli ekkert við.