15.03.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 894 í B-deild Alþingistíðinda. (1396)
10. mál, vátryggingarfélag fyrir fiskiskip
Ráðherrann (H. H.):
Mál þetta hefir verið í nefnd í efri deild, og samþ. því sem nær óbreytt. Háttv. Ed. leit svo á, að hér væri um talsverða réttarbót að ræða, og framför fyrir fiskiveiðaatvinnu landsins. Eg skal eigi fara lengra út í þetta á þessu stigi málsins, en skírskota til ástæðanna, sem prentaðar eru með stjórnarfrumvarpinu. Vona, að háttv. neðri deild setji einnig nefnd í málið, og verður þá tækifæri til að ræða það síðar. En mig langar til með leyfi háttv. forseta að grípa þetta tækifæri til þess að gera nokkrar athugasemdir um annað vátryggingarmálefni, sem sé um brunavátryggingarlögin, sem samþykt voru á síðasta þingi, en enn ekki hafa getað komist í framkvæmd, og virðist mér vel við eiga, að nefnd sú, sem fjallar um þetta vátryggingarmál, sem hér liggur fyrir, ætti líka að taka það mál til athugunar jafnframt.
Eins og mönnum er kunnugt, var það gert að skyldu, að vátryggja öll hús utan Reykjavíkur í íslenzka félaginu, en jafnframt var ákveðið, að félagið mætti ekki taka til starfa fyr en fengin væri endurtrygging fyrir ákveðnum hluta. En það kom brátt fram, að það var ekki áhlaupaverk, að komast í endurtryggingarsamband við útlend ábyrgðarfélög, þar sem um lögboðið ríkis-monopol er að ræða annars vegar, sem ábyrgðarfélögin telja sér andstæðilegt fyrirtæki, og stríðandi á móti eðlilegum rétti þeirra til frjálsrar samkepni. Það er stutt yfir sögu að fara, að stjórnin leitaði um þetta bæði til danskra, sænskra, enskra og þýzkra félaga, en þau synjuðu öll að takast á hendur endurtryggingu fyrir okkur. Hið norræna ábyrgðarfélaga-samband (Tarif-Foreningen) bannaði öllum sínum meðlimum að eiga við gagnábyrgðina, meðan um einkaréttarlög væri að ræða, og önnur félög, sem standa í sambandi við þennan félagsskap, fylgja dæmi þeirra.
Nú meðan eg var síðast í Höfn, var hreyfing á málinu. Forstjórinn fyrir nýja danska brunabótafélaginu, geheimeetatsráð Bramsen, fyrverandi ráðherra, hélt fyrirlestur um þetta efni, og virtust vera líkur til, að endurtrygging mundi geta fengist, ef Ísland slepti ákvæðinu um, að skylda menn til þess að vátryggja eingöngu í landsfélaginu, og hefi eg verið að búast við símskeyti um þetta efni fram á síðasta dag; en það er enn ókomið. Það var bent á það, að þó slept væri einkaréttarákvæðinu, þá væri samt allar líkur til, að öll hús yrðu vátryggð einmitt í hinu íslenzka félagi, vegna þess, að í lögunum er innlenda félaginu veitt hlunnindi, t. d. um forgangsrétt og trygging iðgjaldagreiðslu, sem mundi gera það að verkum, að bankar og lánstofnanir settu það að skilyrði fyrir lánveitingum upp á hús, að þau væru trygð í landsfélaginu.
Það ætti því að vera hættulítið að sleppá ákvæðinu um lögskyldu til að nota einmitt það félag; en auk þess mætti og ná sama takmarki með því að takmarka einkarétt innlenda félagsins við fyrstu 10,000 krónurnar í hverri húseign, en gefa frjálst það, sem þar er fyrir ofan, og sleppa þá allri kröfu um endurábyrgð. Það yrði sömu tekjurnar og áhættan fyrir innlenda félagið, eins og nú er til ætlast í lögunum, þar sem það á að endurtryggja alt, sem er yfir 10.000, og ekki verður við því búist, að endurtrygging fáist ódýrara en iðgjaldið verður hér. Háttv. nefnd ætti að taka þessar leiðir til athugunar, og mun eg gefa henni þær frekari upplýsingar, sem eg get í té látið. Félagið kemst naumast í framkvæmd, nema eitthvað sé að gert til breytingar á lögunum.