15.03.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 896 í B-deild Alþingistíðinda. (1397)

10. mál, vátryggingarfélag fyrir fiskiskip

Jón Ólafsson:

Eg verð að vera þeirrar skoðunar, að rétt sé að skipa sérstaka nefnd í þetta mál. Það er fleira en það, sem í þessu frumvarpi stendur, sem getur komið til álita og þarf íhugunar. Vér þurfum ýmis ný ákvæði um elds-, sjávar- og lífs vátryggingarfélög, sem löggjafarvaldið þarf að setja, og það helzt sem fyrst. Hér veður uppi urmull af útlendum vátryggingarfélögum, og þau sum eigi sem tryggilegust, sum jafnvel beinlínis ískyggileg. En löggjafarvaldið gerir ekkert til þess að vernda menn gegn viðsjálum félögum og prettum þeirra. Í Danmörku er þessu öðruvísi háttað. Þar er það í lögum um vátryggingar, að ekkert útlent félag má reka atvinnu (tryggingar) í landinu, nema það hafi þar varnarþing og setji tryggingarfé eftir ákvæðum stjórnarinnar fyrir efndum samninga sinna. Svo ætti og hér að vera.

Það er því sannarlega engin vanþörf á, að skipuð sé sérstök nefnd.