05.03.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 903 í B-deild Alþingistíðinda. (1407)

14. mál, meðferð skóga, kjarrs o. fl.

Ráðherrann (H. H.):

Eg hélt, að hinn háttv. 2. þm. Árn. (S. S.) ætlaði að taka af mér ómakið að mæla fram með frv. því að þetta er í hans »fagi« og fræðigrein; en það varð nú ekki. Sannast að segja furðaði mig á því, að heyra svona ræðu frá jafn vitrum manni, sem ætti að hafa talsverða þekkingu og kunnugleik á málinu.

Hinn háttv. þm. hélt því fram, að það sem farið væri fram á í þessu frumv. væri í aðalatriðunum ekki annað eða meira, en það sem þegar stæði í lögum frá 22. nóv. 1907 um skógrækt í landinu. Þetta er ekki rétt, því það er mjög verulegur munur á lögunum og ákvæðum frv., sem nú liggur fyrir. Í lögunum frá 1907 er lagður grundvöllur undir skógræktarmálin hér á landi og föstu skipulagi komið á þau, skógræktarstjóri ákveðinn og skógarverðir o. s. frv. Ákvæði frv., sem nú liggur fyrir, hníga að því að koma í ræktunarstarfseminni og lögunum frá 1907 í framkvæmd, og það er ekki einasta verið að styðja skógræktina, heldur og aðaláherzlan lögð á að vernda landið, að banna að rýja það og eyðileggja.

Önnur atriði, sem hinn háttv. þm. gat um, koma fremur til greina við 2, umr. — Það er alls ekki vantraust á íslenzkri gestrisni, þótt í frumv. standi ákvæði um að mönnum sé skylt að

fylgja skógræktarstjóra og þeim mönnum, sem ferðast til að leiðbeina í skógræktinni; það má eins vel skilja ákvæðið sem upphvatning til þess, að láta ekki gestrisnina hamla skógræktarmönnum frá því að vinna verk sitt.

Jafnvel þótt ekki þurfi að búast við, að menn hamli umferð um land sitt, þá er mönnum það þó heimilt, ef um girt land er að ræða, og því eru ákvæði um það í frumv., sem taka af öll tvímæli. — Ákvæðið um, að hreppstjórar séu skyldir að fylgja skógræktarstjóra, ef hann æskir þess, er sett til þess að þeim verði kunnar bendingar og fyrirskipanir skógræktarstjóra, því það eru þeir, sem eiga að sjá um framkvæmdir þeirra og líta eftir að lögunum sé hlýtt.

Frumv. þetta fer skamt. Skógræktarstjóri vildi fara lengra, en stjórnin sá sér það ekki fært, t. d. að banna með öllu fjárbeit í skógunum.

Eins og eg tók fram áðan, þá eru þetta einstök atriði, sem ekki ætti að fara út í við þessa umr. Aðalatriðið er, að eitthvað verður að gera til að vernda landið, og það er tilgangurinn með þessu frv.