15.04.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 910 í B-deild Alþingistíðinda. (1415)
14. mál, meðferð skóga, kjarrs o. fl.
Hannes Hafstein:
Það er vissulega ekki meiningin með frumvarpinu að svifta eigendur jarða, þar sem hrís og kjarr vex, notkunarrétti þeirra, heldur einmitt að tryggja eigendum til langframa jafnvel mjög aukin not af slíkum skóglendum, með því að stuðla að því, að þær séu sem heppilegast notfærðar, notaðar eins og siðuðum mönnum sæmir, en ekki með þeirri skammsýni, sem lengst af hefir brunnið við hjá oss Íslendingum í þessu efni. Meining laganna er ekki, að svifta menn eigum sínum, heldur vernda þær fyrir þá og landið í heild sinni. Enda þótt svo hagi til sumstaðar, sem hjá háttv. þm. S.-Þing. (P. J.) að jarðirnar séu enn þá að miklu leyti vaxnar kjarri eða hrísi, þá er ekki víst, að slíkar skóglendur verði til langframa, ef ranglega er með farið, en þar sem svo sérstaklega stendur á, að breyta á hríslendi í ræktaða jörð, verður auðvitað engin fyrirstaða á því að fá leyfi skógræktarstjóra eða skógarvarðar til þess, að rífa hrísið upp með rótum.
Eg vona að nefndin fallist á þetta, og frumv. nái samþykki hinnar háttv. deildar.