03.05.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 932 í B-deild Alþingistíðinda. (1447)
15. mál, námulög
Framsögumaður (Björn Kristjánsson):
Háttv. Ed. hefir gert örlitlar breytingar á frumv. eins og það var samþ. í Nd. og nefndin hefir fallist á þær. Breytingarnar eru að eins 3. Við 3. gr. er felt úr: »með öðrum áhöldum en hökum og skóflum, eða öðrum óþektum áhöldum«. Nefndin hefir fallist á að þessi orð væru feld í burtu. Svo er við 13. gr. Henni hefir verið breytt, að því er snertir breidd á útmælingu, þegar málmurinn liggur í æð, að hún megi ekki vera minna en 100 metra á breidd.
Þá kemur 17. gr. Þar er að eins bætt við nokkrum orðum til skýringar. Þar stendur: »Auk þess greiði námuhafi jarðarábúanda lóðargjald fyrir hús og byggingar á námustaðnum, 5 aura fyrir hvern ferhyrningsmeter, sem hús standa á«. Þessi síðustu orð: »sem hús standa á« voru eigi í frv., eins og það fór frá Nd., en Ed. hefir sett þau inn og er það til bóta.
Eg hefi svo ekki meira um breytingar Ed. að segja; þær eru sumar til bóta og sumar meinlausar. Vona, að frv. verði samþ. hér í deildinni.