08.03.1909
Efri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 392 í B-deild Alþingistíðinda. (147)
6. mál, aðflutningsgjald
Sigurður Hjörleifsson:
Hér hafa verið töluð nokkur hörð orð til deildarinnar, ef hún færi að samþykkja þær breyt.till. sem hér liggja fyrir. Það hefir verið talað um grimd og þess háttar. Það hefir líka verið bent á það með hógværum orðum, að ef þetta gengi fram, þá væri það gert, sem ekki væri samboðið siðuðum þjóðum. Eg vil segja að það séu stór orð, að kalla það að réttur sé brotinn á mönnum, ef þetta yrði samþykt. Eg býst við, að það vaki einmitt fyrir þingmönnum, að brjóta ekki rétt einstaklingsins. Hvað hafa menn fyrir sér, er þeir segja slíkt um br.till. þá sem hér er um að ræða? Eg veit ekki betur, en að þjóðfélaginu sé heimilt að leggja skatt, hvernig og hvenær sem það vill, ef því þykir betur svo haga. Því að hér er beint um skatt að ræða. Br.till. fer fram á að lagður sé skattur á eign í landinu. Mér dettur í hug fasteignaskatturinn; þar er líkt ástatt, og kallar þó enginn þann skatt réttarbrot. Og það má segja, að fasteignaskatturinn komi þyngra niður; því að hér er að ræða um vöru, sem gengur ört kaupum og sölum, og þá fær seljandinn sinn skatt endurgoldinn með kaupunum. Vilji hann ekki greiða skattinn, getur hann selt vöruna strax, en það er sjaldan hægt að gera við fasteign. Eg get ekki séð annað, en að hér sé að ræða um skatt, sem snertir einstaklinginn miklu minna en t. d. sá skattur, sem eg mintist á, og mér finst fráleitt að tala um réttarbrot í þessu sambandi.