27.02.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 997 í B-deild Alþingistíðinda. (1489)

16. mál, aðflutningsbann

Ráðherrann (H. H.):

Það er ekki ástæða fyrir mig til þess að tala mikið meira en eg þegar hefi gert um þetta mál. Eg hefi lýst skoðun minni á því, og hefi litlu við að bæta. Þó verð eg að gera örstutta athugasemd við eitt atriði í því sem háttv. þm. Barð. (B. J.) sagði. Hann lagði áherzlu á það, að tillitið til Spánarsamningsins væri veigamesta mótbáran móti frumv., en reyndi að sýna að hún væri þó einskisvirði. Eg verð að játa, að eg skildi ekki vel þá röksemd hans, að Danir hefðu ekki vilja slaka til á víntollinum hjá sér til þess að útvega okkur Íslendingum betri kjör í saltfisksverzluninni við Spán, og að aðflutningsbannið mundi þess vegna engum erfiðleikum valda í þá átt, að hindra eða skemma saltfisksmarkaðinn fyrir okkur þar. Sannleikurinn er sá, að Danir hétu Spánverjum í 5. gr. verzlunarsamningsins, gegn tilslökun þeirra, beztu kjörum sem nokkur önnur þjóð hefir eða fær, að því er snertir toll á ýmsum spönskum vörum, þar á meðal á öllu spönsku víni í kerum eða flöskum, án tillits til styrkleika, og lengra gátu þeir auðvitað ekki gengið vegna annara verzlunarsamninga. Og þeir hétu frjálsri verzlun. Hitt skildi eg, er háttv. þm. sagði, að innflutningur hingað til lands af spönskum vínum, væri svo nauða lítill, að Spánverjar mundu oss engan gaum gefa. En þar sem hann því til sönnunar sagði að hingað hefði eigi flutst meira af spönsku víni alls en 12 flöskur af »Tinto« (rauðvíni), þá verð eg að álíta, að háttv. þm. hafi ekki sem sannastar sagnir eftir að fara. Eg get fullvissað háttv. þm. um, að jafnvel af »Tinto«, sem er fremur lélegt landvín, hafa flutt hingað meira en 12X12 flöskur, og eg held að eg megi fullyrða, að alla þá tíð sem Krüger lyfsali og síðari lyfsalar hér höfðu vínsölu, hafa þeir fengið alt sitt vín frá Spáni, gegnum Companía Hollandesa, sem enn mun hafa útsölu hér í bænum, auk þess sem ýmsir prívatmenn stöðugt panta vín frá Cadiz frá Holbec & Cia o. fl. Og þó að tiltölulega lítið af þeim spönsku vínum, sem hingað flytjast, sé flutt beina leið, þá skiftir það jafnt máli fyrir framleiðanda, að því er afsetning vörunnar snertir, ef markaðinum er algerlega lokað hér. Það eru öfgar eða misskilningur, að útlend vín, sem vér kaupum frá Danmörku, séu mestmegnis fölsuð og búin til af vínsölunum sjálfum; þótt eitthvað kunni að vera blandað, þá eru vínin mestmegnis frá vínlöndunum, Sherry, Portvín og Madeira mest frá Spáni, auðvitað misjafnt að gæðum. Nýju vínin og hin svo nefndu landvín eru þar svo ódýr, að vínsalar búa eigi sjálfir til öllu ódýrari vökva, er líkist þeim, og hin alræmda vörufölsun vínsölumanna er mest í því fólgin að blanda ódýrum tegundum í dýrar tegundir eða skrökva til aldurs og heimkynnis, en frá vínlöndunum kemur varan. Vínsölubann hlýtur því að snerta verzlunarhagsmuni vínlandanna, hvert sem beint flutningssamband er meir eða minna.

Vitanlega get eg ekki sagt neitt um það með vissu, hvernig Spánverjar mundu snúast við þessu máli, þó að eg hafi ákveðna ástæðu til þess að halda, að þetta mæti mótspyrnu. Og þar sem um mikilsvarðandi hagsmuni er að tefla okkar meginn, virðist mér það sjálfsagt, að nefnd sú, sem væntanlega verður sett í málið, reyni að komast á einhvern hátt í samband við spanska sendiherrann í Kaupmannahöfn og fá hjá honum upplýsingar áður lengra er gengið í málinu. Það væri ekki skemtilegt fyrir þá, sem að þessu frumv. standa, ef þeir væru búnir kyrfilega að samþykkja það sem vilja »meiri hluta þings og þjóðar« og yrði svo að stinga því snögglega í vasann aftur.

Háttv. þm. Barð. (B. J.) talaði fagurlega um það, að nóg væri að eiga »dönsku mömmu« þó ekki væri verið að búa til aðra »spönsku mömmu«. Eg vil fræða háttv. þm. á því, að við erum ekki þeir fyrstu, og verðum ekki þeir síðustu, sem verða að taka tillit til gildandi verzlunarsamninga og til verzlunarsambandsins við aðrar þjóðir, í löggjöfinni. Það er víða pottur brotinn í því tilliti, ekki að eins hjá hinum smáu heldur einnig hjá hinum stærri og auðugri þjóðum, og hefi eg þegar bent á dæmi í þá átt. Eg get ekki kannast við það, sem háttv. þm. sagði, að í Ameríku væri hreint »innflutningsbann«; eg hefi eigi getað fundið að í prohibitions-fylkjunum þar sé annað en sölubann.

Eg verð því að álíta, að þetta sé algerlega ný tilraun, sem hér á að gera. Vínsölubann er vitanlega lögleitt í sumum fylkjum vestan hafs, en það hefir reynst afarerfitt að framfylgja þeim lögum, og að dómi merkra höfunda hafa þau sumstaðar verið til stórhneykslis og aukið ólöghlýðni og siðspilling. Háttv. þm. var að segja okkur sögu til að sanna ágæti þeirra. Eg gæti líka sagt honum sögur um hið mótsetta. Eg veit ekki, hvort eg má minna háttv. þm. á söguna, sem Matth. Jochumsson skáld segir í bókinni um Chíkagoförina, er hann fékk í einu bannfylkinu »það sem líkast var öli«, fyrir hjálp reyndari förunauts. Eða man háttv. þm. eftir skýrslu Henriks Cavlings í bók hans um Ameríku, viðvíkjandi reynslu hans í bannfylkjunum. Lögreglustjórinn sjálfur í stórum bæ í bannríki einu bauð honum inn á knæpu áfengisdrykki, og gaf þá ástæðu, þegar Cavling undraðist þetta, að templarar vildu hafa bannlögin, en nontemplarar whiskýið; stjórnin þyrfti atkvæði beggja og þess vegna fengju báðir sitt fram.

Eg get ekki að því gert, að mér býður við að hugsa mér æskulýð landsins sem njósnara og uppljóstursmenn! Það getur verið, að það lánaðist með svona lögum, að leiða einhverja út á þá glæsilegu braut, að leita sér inntekta á þann hátt. En önnur hætta liggur þó nær. Íslendingar eru—sem betur fer — yfirleitt enn þá svo góðir drengir, að þeim er næsta óljúft að gera sér það að gróðavegi að þefa uppi hrasanir breyzkra bræðra, jafnvel þegar um eiginleg brot er að ræða, hvað þá þegar að eins er að ræða um yfirtroðslur þvingunarlaga, sem réttarmeðvitundin ekki fordæmir sem óheiðarlegar eða glæpsamlegar. Íslendingar eru yfir höfuð ógjarnir á að koma kunningjum sínum »í bölvun«, sem kallað er, ófúsir á að bera fellandi vitnisburði, og er því sérstaklega að mínu áliti hætta á því, að margir mundu af svona ofstækislögum leiðast til rangs vitnisburða, eða jafnvel eiða til þess að bera af mönnum sannar sakir í þessu efni. Þeir sem átt hafa við rannsókn lögreglumála hér á landi, t. d. út af kærum um æðarfugladráp, munu kannast við, að eg tala hér ekki út í bláinn. En rangir vitnisburðir og yfirhilming eru einnig siðspilling, sem landslögin eiga ekki að gefa ótilhlýðilegt tilefni til.