27.03.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1004 í B-deild Alþingistíðinda. (1494)
16. mál, aðflutningsbann
Framsögumaður (Björn Þorláksson):
Svo stendur á því, að eg stend hér upp, að eg var tekin í nefndina við burtför framsm., þm. Barð. (B. J.), og falið það starf.
Áður var nefndin klofnuð, og meiri hlutinn sem orðinn var, kaus mig framsm. þessa máls. Eg stend ekki upp til þess að segja neitt um þetta mál, en vil að eins leggja til, að því verði vísað til 2. umr.
Við byrjun 1. umr., 27. febr. var málið rætt ítarlega, og mun tæplega skýrast betur. Eg veit, að engar munu fram koma röksemdir til að sannfæra mig frá andstæðingum bannsins, né heldur býst eg við, að þeir muni láta sannfærast af röksemdum mínum.
Eg legg til að málinu verði vísað til 2. umr.