30.03.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1057 í B-deild Alþingistíðinda. (1506)
16. mál, aðflutningsbann
Sigurður Gunnarsson:
Háttv. sessunautar mínir og vinir, 1. þm. Rvík. (J. Þ.) og 1. þm. S.-Múl. (J. J.) mynda minsta og minni hluta í þessu stórmáli. Háttv. 1. þm. Rvk. (J. Þ .) segist vera oss, meiri hlutanum, samdóma í aðalatriðunum, en tillögur hans virðast þó á hinn bóginn benda á það, að það sé ekki nema á yfirborðinu. Háttv. þm. S.-Múl. (J. J.) segist skýlaust vera á móti frv. þessu, sem hér liggur fyrir; hans staða er því hrein í málinu, og tel eg honum það til hróss, út af fyrir sig. Ef nú tillögur háttv. 1. þm. Rvk. (J. Þ.) næðu fram að ganga, þá fæ eg ekki betur séð, en slíkt yrði miklu fremur málinu til ógagns, en gagns, þar sem hér er um hrein bannlög gegn aðflutningi áfengis að ræða.
Hann sagði, að bannlög mætti hafa á ýmsa vegu. Það má satt vera; en ekki tjáir, að setja ákvæði í þau lög, er gera þau í reyndinni að káki og engu öðru. En út á þetta virðast mér ýmsar breyt.till. hans þó ganga. í 9. gr. vill hann banna að selja áfengi, en leyfa þó jafnframt að gefa það og veita eða láta af hendi á annan hátt. Ýmsar aðrar breyt.till. hans fara í líka átt, svo sem háttv. framsm. (B. Þ.) hefir bent á.
Þess er og að geta um sektarákvæðin, að þau hefir hann í tillögum sínum fært svo mjög niður, að meiri hlutanum þykir ekki ráðlegt, að svo mikil niðurfærsla verði samþykt, þótt vér hins vegar játum það, að upphæð sektarinnar sé ekki aðalatriðið. — Yfirleitt vil eg ráða til, að ekki verði fallist á breytingartill. þessa þingmanns, þær er snerta merg málsins. En hinar, sem til bóta kunna að horfa, mun meiri hlutinn taka upp við þriðju umræðu.
Þá skal eg víkja máli mínu, að hv. 1. þm. S.-Múl. (J. J.), Ef dæma skyldi gæði nefndarálita eftir vöxtum, þá væri nefndarálit hans og þeirra félaga, háttv. 1. þm. N.-Múl. (J. J.) eflaust ágætt, en það er ekki áreiðanlegur mælikvarði, að dæma nefndarálit eða ritverk eftir lengd þess og breidd. (Jón Jónsson, 1. þingm. S.-Múl.: Við vorum tveir um það). Mér dylst nú samt ekki, að háttv. 1. þingm. S.-Múl. (J. J.) á hvern einasta staf í því. Eg þekki stíl hans að fornu fari. Í nefndaráliti minni hlutans er fyrst inngangur, og virðist hann eingöngu ritaður til þess, að koma að rangfærslum og svigurmælum um nefndarstarfið eða samvinnuna í nefndinni. Bjóst eg ekki við slíku af vini mínum háttv. l. þm. S- Múl. (J. J.). Hann ber það þar fram, að minni hlutanum hafi eigi gefist kostur þess, að ræða og íhuga málið í nefndinni með meiri hlutanum. (Jón Jónsson, 1. þm. S.-Múl.: Hve nær var aðalefni málsins þar rætt?). Verður ekki háttv. 1. þm. S.-Múl. (J. J.) að játa, að vér allir nefndarmenn, meiri og minni hluti, gengum gegnum frv. grein fyrir grein. Að vísu taldi háttv. 1. þingm. S.-Múl. (J. J.) sig þá þegar vera á móti málinu, en engu að síður kom hann með bendingar hér og þar, sem vissulega voru málinu til bóta. Þetta má háttv. 1. þm. S.-Múl. (J. J.) muna. Eg frábið mér því öll svigurmæli um ofríki af hálfu meiri hlutans við nefndarstarfið.
Háttv. 1. þm. S.-Múl. (J. J.) þykir og einkennilegt og nýstárlegt, að nefndarálit meiri hlutans skuli vera samið utan nefndar. Það veit hann þó, að ekkert er algengara en það, er nefndir, eða hluti nefnda hafa komið sér saman um aðal-breytingarnar.
Allar kvartanir háttv. 1. þm. S.-Múl. (J. J.) í þessu efni eru tómir útúrdúrar. Og uppgerð er það og ekkert annað, er hann talar um það, að þeim félögum, andstæðingum málsins, hafi eigi gefist kostur þess að öðlast hjá meiri hlutanum æðri og betri þekking í þessu máli. Eg þekki háttv. 1. þm. S.-Múl. (J. J.) svo, að eg get fullyrt, að þótt vér, vinir þessa máls, hefðum setið við heila viku, mundum vér eigi hafa þokað honum um eitt fet í þessu máli, enda hefir hann talað svo í þessu máli í dag, að enginn fær annað ályktað, en að það sé föst sannfæring hans, að lög, er hefti innflutning áfengis, séu ill, séu siðspillandi. Svo djúpt tekur hann í árinni.
Þegar innganginum að minni hluta álitinu sleppir tekur ekki betra við. Þar eru ýmsar mjög rangar og óviðurkvæmilegar staðhæfingar. Á sumar þeirra hefir háttv. framsm. (B. Þ.) þegar minst. Eg skal svo í viðbót minnast á nokkrar.
Fyrsta mótbáran er skerðing á persónulegu frelsi, þessi gamla, útslitna mótbára. Hann segir, að menn eigi að hafa frelsi til als, er ekki komi í bága við hagsmuni annara. Vel mætti í því sambandi minna þingm. á konu og börn drykkjumannsins. Mundi ekki frelsi það, er slíkur maður tekur sér, til þess að gera sig að drykkjuræfli, og gera sig ófæran til þess að annast heimili sitt, konu og börn, koma all-tilfinnanlega í bága við hagsmuni þessa skylduliðs hans?
Yfirleitt eru allar þessar mótbárur, sem bygðar eru á skerðingu persónulegs frelsis, yfirskin eitt. Löggjöf bæði þessa lands og annara verður einatt að hefta að meiru eða minna leyti persónulegt frelsi borgaranna. Og að svo miklu leyti, sem segja má, að skerðing persónulegs frelsis komi hér til greina, er hún einstaklingnum og þjóðfélaginu til góðs.
Háttv. 1. þm. S.-Múl. (J. J.) heldur því fram í nefndarálitinu, að það sé að mjög litlu leyti fátækari hluti þjóðarinnar, sem víntollinn greiði, heldur hinir efnaðri. Því er nú miður, að þetta er ekki satt. Allir vita að langmest munar um brennivínstollinn. Hverjir kaupa nú mest brennivínið? Öll alþýða manna, einmitt hinir fátækari. Embættismennirnir, þeir sem peningana hafa sér til sælgætis, kaupa meir dýrari vínin. Það er því næsta eðlilegt, að alþýðan fylgi útrýmingu áfengisins, á hana legst skaðsemin af áfengisnautninni þyngst. Það eru ekki alþýðumennirnir yfirleitt, sem halda hlífiskildi yfir áfengisnautn og böli því, er af henni stafar, heldur heldri mennirnir, ekki sízt hinir hálaunuðu hérna í Reykjavík. Það má lesa þá úr flesta, það eru þeir sem þyngsta bera ábyrgðina á því, ef vínið, með öllum illum afleiðingum þess, verður enn sem fyrri, friðhelgað í landinu.
Minni hlutanum þykir snjallræði að safna áfengistollinum í sjóð og vitnar þar til till. þm. Skagf. (Ó. Br.) — og telur með því þarft verk unnið með léttu móti. Með léttu móti? Spyrji þm. alla þá sem á sama tíma mundu glata fé, heilsu og heimilisfriði af ofnautn áfengis, hvort samsafn blóðpeninganna úr vösum þeirra hefði orðið með léttu móti.
Alt hið langa mál minni hlutans um gallaðan undirbúning þessa máls, nær engri átt. Það er blátt áfram skáldskapur. Alþjóð manna á Íslandi er það vitanlegt, að til einskis máls hefir verið jafnvel vandað sem þessa. Það hefir verið um tugi ára rætt og ritað um það mál í hverri sveit landsins svo að segja. Og ekki þarf þm. að koma á óvart, þótt þetta mál sé nú komið inn á þing í frv. formi; hann veit vel að þetta og ekkert annað hefir frá upphafi verið takmarkið, alger útrýming úr landinu.
Í nefndarálitinu hefir háttv. 1. þm. S.-Múl. (J. J.) ýms ómakleg orð um það, hversu atkvæði manna með málinu 10. sept. væru undir komin; menn hefðu verið vélaðir, blektir, blindaðir, já, jafnvel mútað fyrir landsfé, og átti hann þar víst við styrk þann, er G.-T.-reglan hefir fengið úr landssjóði. Þessum orðum öllum mótmæli eg harðlega, og veit eg þau eiga sér engan stað, þar sem eg þekki til. Templarar hafa jafnan beitt röksemdum og afli sannfæringarinnar fyrir góðu máli, enda veit þm., að atkv.gr. var leynileg. Svo má og minna á, að athyglin snerist langmest 10. sept. að sambandsmálinu. Þessvegna má álykta, að atkv.gr. um aðflutningsbannið mundi hafa gengið því máli enn meira í vil, ef um það eitt hefði verið að tefla.
Sjálfur hefir 1. þm. S.-Múl. (J. J.) verið með í því að undanförnu á þingi, að veita G.-T.-reglunni fjárstyrk til að útbreiða skoðanir sínar. Kemur það því undarlega við nú, að hann fær það út, að þessum styrk hafi verið varið á siðspillandi hátt. Þetta eru órökstudd orð, sleggjudómur, sem ekki er samboðinn jafn gáfuðum og reyndum þm., sem hann er. Það er hin megna óbeit hans ein á málinu, sem fær gert skiljanleg slík ummæli.
Hann verður þó að játa, að það er með öllu réttmætt, að útbreiða skoðanir sínar, þótt það kosti fé, hvort heldur opinbert, sé það löglega fengið, eða einstakra manna.
Um siðspillandi meðul af hálfu bannvina getur því eigi verið að ræða. Hitt mætti með meiri rétti segja, að vínvinir og bannféndur héldu verndarhendi yfir siðspillingu með andróðri sínum gegn máli þessu.
Þar sem minni hlutinn í nefndaráliti sínu þykist tala í nafni þjóðarinnar, er hann skorar á þingið að drepa þetta frv., þá þykir mér skörin færast allmjög upp í bekkinn. Það erum vér, meiri hluta menn, sem getum einir talað hér í hennar nafni. Það sýnir atkv.gr. um málið 10. sept. Hún stendur stöðug, þótt hv. 1. þm. S.-Múl. (J. J.) þyki hart undir að búa.
Þar sem þingið að undanförnu hefir, eins og eg hefi áður tekið fram, styrkt starf G.-T.-reglunnar, hefir það gert það efalaust af því, að það hefir metið starfið mikils, og vitandi vel, að starfsemin laut öll einmitt að útrýmingu áfengis með öllu. Þingið er því í fullu samræmi við sjálft sig, ef það nú sþ. bannlög.
Varatillaga minni hlutans um að bera málið aftur undir þjóðina og heimta miklu meiri atkvæðamun, en 10. sept. er nærri því skopleg. Mér virðist það vera að gera gys að kjósendunum. Þessi till. hans er síðasta úrræðið, er hann grípur til í því skyni að bana málinu.
Mér þykir vissulega leitt, að þessi þm., er eg hefi þekt lengi og að öllu góðu, skuli berjast gegn svo mikilvægu og heillaríku málefni.
Hvað svo sem háttv. sami þm. kann að segja um afstöðu þessa máls erlendis, þá get eg sagt honum það, að engilsaxneski þjóðflokkurinn í Evrópu og Ameríku stefnir í bannlagaáttina, Englendingar og Ameríkumenn kannast fyllilega við, að áfengisbölið er eitt allra hættulegasta þjóðarmeinið. Það var lagt nýlega frv. fyrir neðri málstofu enska þingsins, er gengur mjög í þá átt að kreppa að vínsölu og vínnautn, og gekk það þar í gegn með miklum atkvæðamun, en þegar til efri málstofunnar kom, leyfðu lávarðarnir frv. ekki einu sinni til 2. umr. Aðalástæðan var sú, að þeir áttu ýmsir hluti í víngerðarhúsum, og bendlaðir vínbruggurum á fleiri vegu. En auðséð er að Englendingar láta hér ekki staðar numið. Allir vita um Finna, er fyrstir hafa samþykt hjá sér bannlög, þótt einvaldsherra Rússa hafi neitað þeim staðfestingar.
Mikinn og merkilegan sóma teldi eg oss það Íslendingum að verða fyrstir til að útrýma vágestinum mikla frá ströndum vorum. Við það mundi og allur þróttur vor vaxa, bæði líkamlega og andlega. Það er vísindalega sannað, að þeir sem ekki neyta víns eru að öðru jöfnu hraustari og heilsubetri og þolnari bæði við líkamlega og andlega áreynslu, en neytendur þess, og standast betur sjúkdóma, þrautir og þjáningar.
Mér kemur í hug viðburður úr veraldarsögunni. Hann er um viðskifti Sýrusar Persakonungs og hirðingjaþjóðar, er hétu Massagetar. Þeir voru hraustir og harðfengir. Sýrusi hafði eigi tekist að vinna bug á þeim, en loks tókst honum að finna ráð, er hjálpaði honum um stundarsakir. — Hann lét sem hann flýði undan þeim hluta Massageta, er þá var næstur, skildi eftir tjöld, farangur, matvæli og einkum nóg af gómsætu víni. Massagetar tóku herbúðirnar, settust að krásunum og víninu, sem þeir þektu eigi áður. En er þeir höfðu drukkið sig drukna sneri Sýrus aftur með lið sitt, og vann sigur á þeim með hægu móti. Tómyris, drottning Massageta, er ekki var viðstödd ósigur liðs síns, safnaði þegar liði af nýju, réðist að Sýrusi, vann sigur og tók Sýrus höndum, lét hálshöggva hann og varpa höfði hans í ker, fullt af víni. Mælti hún þá þessum eftirminnilegu orðum: »Svalaðu þér nú, Sýrus, þú hefir lengi þyrstur verið«.
Eg vildi feginn óska, að Íslendingar rækju sem fyrst vínið af höndum sér. Þegar það er ekki lengur til, þyrstir engan í það, og enginn verður á því gintur, sér og öðrum til óláns og tjóns. Hins vegar mun þjóðin verða hraustari, auðugri og betri.
Að svo mæltu óska eg, að málið verði látið ganga til 3. umr.