15.04.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1102 í B-deild Alþingistíðinda. (1516)

16. mál, aðflutningsbann

Ráðherrann (B. J.):

Það er að eins ein breyt.till., sem eg ætla að minnast á og mér stendur stuggur af. Það er tillagan um nýja atkvæðagreiðslu af þjóðarinnar hálfu í þessu máli. Það sjá allir, að þetta er undarlegur tvíverknaður, sama og að láta kveða upp tvisvar dóm í sama máli, og er naumast annað en að gera gabb að kjósendum. Þetta er vafalaust tilraun til að ráða málinu bana eða yrði að minsta kosti notað til þess. Þjóðin hefir greitt glögt og ákveðið atkvæði í þessu máli; hún hefir skorað á löggjafarvald landsins, að taka alveg fyrir allan aðflutning áfengis til þessa lands. Það var um þetta, atriði sem atkvæða þjóðarinnar bar að leita, en eigi um hvernig orða skuli þau lög grein fyrir grein og orð fyrir orð. Með því bragði er lögð gildra fyrir kjósendur, þessa freistað til að láta alt frumvarpið frá þinginu gjalda þess, ef ekki líkar einhver setning í því eða orð, og hafna þá lögunum alveg.

Það er því óþarft og rangt að vera að spyrja tvisvar að hinu sama hvað ofan í annað, og þar að auki talsverður kostnaður. Landssjóður er illa staddur, og eigi enn að fara að eyða nokkrum þúsundum króna til þess að koma máli þessu áleiðis, er slíkt alveg óviðeigandi. Það hefir þegar verið varið talsverðu fé til bindindisútbreiðslu hér á landi og er engin hæfa að vera að gera leik til þess að bæta við það. Og þegar komið er málinu svo langt áleiðis sem hér er, að eigi vantar nema herzlumuninn til að ráða því til fullra lykta, væri slíkt alveg óverjandi. Er það ódrengilegt af mótstöðumönnum þessa máls að reyna að bregða fæti fyrir það á þennan hátt. Væri og fátt, sem þingið gæti unnið landi og lýð meira til gagns, en að gera þennan vilja þjóðarinnar löghelgan, fátt er mundi afla þjóð vorri meiri sæmdar en að sþ. nú frv. þetta til fullnaðar.