01.05.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1106 í B-deild Alþingistíðinda. (1519)

16. mál, aðflutningsbann

Framsögumaður meiri hlutans (Björn Þorláksson):

Aðflutningsbannslagafrumvarpið er þá komið hingað aftur frá Ed. með allmörgum breytingum. Í framhalds-nefndaráliti meiri hlutans er stuttlega tekið fram, að mest sé það orðabreytingar, er miði til bóta, en efnisbreytingar yfirhöfuð ekki margar, og ræður nefndin deildinni til að sþ. frumvarpið með breytingum.

Eg skal nú stuttlega skýra frá helztu breytingunum.

Í 2. gr. eru 2 efnisbreytingar. Önnur er sú, að heimild smáskamtalækna til að flytja frá útlöndum vínanda er feld burtu. Er það illa farið, því eins og kunnugt er, fá smáskamtalæknar meðul sín annaðhvort í dufti eða í mjög lágri þynningu. Við þetta hvorttveggja þurfa þeir vínanda til að blanda og þynna meðulin. Það mun nú vera víst, að ýmsir smáskamtalæknar hafi hjálpað mörgum manni og víða bætt úr læknafæðinni og læknaþörfinni. Hér eftir verður slíkt, ef ekki ómögulegt, þá að minsta kosti miklum erfiðleikum bundið. Hér er því um skemd á frumv. að ræða.

Hin breytingin er sú, að prófastar eru settir inn með heimild til að flytja inn messuvín, eins og stóð í hinu upphaflega frumv. og þarf enga athugasemd að gera við það.

Í 1. lið 4. gr. er bætt inn nokkrum orðum um það, að umsjónarmaður skuli endursenda áfengi, ef meira er eða annað en um var beðið, enda skipstjóra skylt að taka við því. Þetta er til bóta.

Í 2. lið sömu gr. og alstaðar annars staðar í frumv. þar sem við á, er orðatiltækinu »skal gert upptækt« breytt í »er eign landssjóðs«.

Aftan við 5. gr. er bætt því ákvæði, að lögreglustjóri skuli ganga úr skugga um, áður en skip lætur úr síðustu höfn, að innsigli, nfl. á áfengisílátum, séu heil og að ekki hafi verið tekið

úr þeim. Þetta mun og vera til bóta.

Aftan við 7. gr. er bætt orðunum: »nema læknislyf sé úr lyfjabúð eða frá lækni«, og er það nauðsynleg viðbót.

Breytingarinnar á 9. gr. get eg ekki fyr en seinna, með því að það er aðalbreytingin við frumvarpið.

10. gr. er alveg ný grein, nauðsynleg afleiðing af breytingu 9. greinar. Hún er um það, hvernig fara skuli með áfengisbirgðir lyfsala og vínveitingamanna frá 1/1 1912 til 1/1 1915. — Greinin er gamall kunningi héðan, orðin til með samvinnu meiri hluta nefndarinnar og 3 þm. úr Ed., og felast í henni alveg nauðsynleg fyrirmæli, úr því vínsölubanni á að fresta 3 árum lengur en aðflutningsbann kemur til framkvæmdar.

11. gr., sem hljóðar um meðferð á áfengisbirgðum einstakra manna, er talsvert breytt, og yfirhöfuð að eg hygg als ekki til bóta, heldur fremur til hins gagnstæða, auk þess sem eftirlit með slíkum áfengisbirgðum af hálfu hins opinbera byrjar nú fyrst 1. jan. 1915, en eftir frumv. er héðan fór, átti það að byrja 1. jan. 1912; þetta mun vera afleiðing af aðalbreytingunni við 10. gr.

Þá eru 2 gr. alveg feldar úr, og mun því hafa ráðið mest tillögur lögfræðinga efri deildar, sem fullyrða að fyrirmæli greinanna finnist í almennum reglum um réttarfar. Sama er að segja um úrfellingu síðari hluta 13. greinar.

Smábreytingar eru við 12. gr. og munu vera fremur til bóta.

Síðasta grein frumv. er héðan fór, er klofin í tvent og myndar 2 greinar. Frumv. er því nú í jafnmörgum gr. og áður.

Þetta eru þá í stuttu máli breytingarnar á frumv., að undantekinni 11. gr., sem er aðal-breytingin á frumv., og hljóðar um veitinga- og vínsölumenn. Hún fór héðan svo, að frá þeim degi, er lögin gengu í gildi 1912 mætti ekki selja hér á landi neina áfenga drykki, en háttv. Ed. hefir breytt ártalinu í 1915. Þetta er stór-mikil breyting, að leyfa að veita vín um 3 ára skeið, eftir að aðflutningsbann er komið í gildi. Eg get skýrt frá því, að meðan málið var hjá nefndinni hér í deildinni, þá var þetta atriði einmitt rætt mikið af meiri hluta nefndarinnar ásamt 3 mönnum úr Ed., og var greinin þá alveg hin sama og nú, en niðurstaðan varð sú, að ófært þótti, að leyfa vínsölu- og vínveitingar til 1915. Nú hefir þó háttv. Ed. sett inn aftur þessa stórkostlegu breytingu og má bezt sjá, hve skaðlega bannvinir álíta hana, á því, að vegna hennar hef eg heyrt ýmsa þeirra lýsa yfir, að þeir vildu heldur láta frumv. falla, en að taka lögunum með þessari breytingu. Þessi vínsölubannsfrestun er komin inn af hræðslu við skaðabótakröfur af hendi þeirra manna, sem vínveitingaleyfi hafa æfilangt eða skemur, og álíta margir, að eigi sé hægt, að svifta þá þessum rétti, nema með því móti, að bæta þeim upp hinn áætlaða skaða. En eg hygg, að miklu heppilegra hefði verið, að kaupa þá alla út strax, því eigi er unt, að reikna í krónum og aurum það tjón, sem þessir menn munu gera landinu og þjóðinni á þessum 3 árum. Eg vil geta þess, að þessir menn eru nú 27 á öllu landinu og skiftast þeir þannig niður á landið, að 9 eru hér í Reykjavík, 2 í Snæfellsnessýslu, 6 í Ísafjarðarsýslu og kaupstað, 1 í Strandasýslu, 1 í Húnaþingi, 2 í Skagafirði, 5 á Akureyri og 1 í Vík í Mýrdal.

Árið 1899 var ákveðið með lögum, að hlutafélög, sem vínsöluleyfi hafa skyldu tapa því eftir 15 ár, og hygg eg, að þingið 1899 hafi eigi haft meiri rétt til þess, að kveða svo á um þetta, en vér til þess, að afnema vínsölu með öllu 1912. Þessi hlutafélög mun álitið vera, að tapi vínsöluréttinum 1. jan. 1912. Enn eru nokkrir menn, sem hafa tímabundið leyfi og detta þeir því bráðlega úr sögunni, og engir nýir koma því í staðinn, samkvæmt ákvæði í 10. gr. Svo bætist það við, að dauðinn mun og fækka þessum mönnum, og má gera ráð fyrir því, að 1915 muni þeir vera orðnir helmingi færri. Vofan, skaðabótakrafan, stendur að vísu enn, en eigi eins ógurleg og áður.

Eg hygg beinlínis rangt, að málinu skuli vera komið í þetta horf. Eg hygg, að menn hafi ekki gert sér svo ljóst, hvaða skaða vínsalan muni gera a þessum 3 árum. Því miður höfum vér engar vissar upplýsingar að byggja á til þess, að geta sagt nokkuð með fullri vissu um þetta. Allar skýrslur vanta um þetta efni. — Eg er orðinn nokkuð roskinn maður og hefi eg veitt því talsverða eftirtekt umhverfis mig, hve margir menn muni árlega bíða bana af vínnautn eða fyrir vínsölu. Hefi eg komist að þeirri niðurstöðu, að í mínum sóknum, þar sem eru um 1000 manns, þá muni það hafa verið 1 maður á ári hverju, eða þá um 80 manns árlega á öllu landinu. En þótt vér nú helminguðum þessa tölu og segðum, að það væri ekki nema 40 á ári, eða 120 á þessum 3 árum, þá er það þó sorglega há tala. Mannslífið verður ekki metið til peninga né heldur öll sú bölvun og óhamingja önnur, er af vínnautn og vínsölu stafar. Þetta verður ekki saman reiknað né með tölum talið. Eitt er víst og það er það, að árlega mundi þetta hjá okkar fámennu og fátæku þjóð mynda feikna upphæð, ef alt ætti að meta til fjár. Það hefði margborgað sig, að borga þegar 1912 vínsölu- og vínveitingamönnum skaðabætur fyrir atvinnumissi, og vera svo lausir við alla þá bölvun vínsölunnar, og það hefði þinginu orðið ólíkt meiri sæmdarauki, en að skilja við málið eins og vér nú neyðumst til að skilja við það.

Af þessu sést, að eg og eg þori að fullyrða það líka, að samnefndarmenn mínir með mér, séu á þeirri skoðun, að frumv. þetta komi stórskemt frá Ed., þótt vér nú verðum að taka það, eins og það kemur fyrir, því miðað við ástandið, sem er, er það þó óneitanlega mjög mikill gróði, þótt það sé miklu ófullkomnara, en vér hefðum kosið.

Eg vil því óska þess, að hin háttv. deild samþykki frumv., eins og það er.

Eg skal geta þess, að eg hef lagt fram ósk um nafnakall við væntanlega atkvæðagreiðslu.