01.05.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1111 í B-deild Alþingistíðinda. (1520)
16. mál, aðflutningsbann
Framsögumaður minni hlutans (Jón Jónsson, 1. þm. S.-Múl.):
Eg get eigi annað en farið enn þá nokkrum orðum um þetta mál, sem meiri hlutinn leggur til, að gert verði að lögum í dag.
Meiri hlutinn hefir eigi látið svo lítið að lofa okkur að koma á sinn fund um þetta mál, en vera má, að eigi hefði það spilt fyrir málinu í heild sinni. Þetta mál, sem nú er komið frá Ed. er eins og nokkurs konar fermingarbarn, sem nú kemur uppskafið frá klæðskera og hárskera, kembt og þvegið í nýju fötunum. Um undirbúning þess til fermingarinnar, að því er innra ástand snertir, skal eg ekki tala nú, heldur um hið ytra, og er þar skemst af að segja, að búningurinn fer ekki vel enn, þrátt fyrir listahendur þeirra í efri deildinni, og að engu mun það vera fermingarbært.
Eg vil leyfa mér að benda á ýms ákvæði, sem eg ekki skil, og sem mér virðast rekast á. Þannig er í 5. gr. ákvæðið um, að lögreglustjóri á síðustu höfn skuli ganga úr skugga um, að innsigli séu heil og ekki tekið á ílátunum. Eg sé hvergi nein fyrirmæli um það, hvernig lögreglustjóri á að vita, að innsiglað áfengi sé í skipinu, en um það eru engin ákvæði. Eg geri eigi ráð fyrir, að ætlast sé til, að hann hafi svo mikið fyrir, að þurfa að fara um borð í hvert skifti til þess að vita, hvort skipstjóri hafi slíka vöru meðferðis. Hvernig á enn fremur að sjá, hvort tekið hefir verið á ílátunum. Að minsta kosti voru brennivínstunnurnar tæmdar með fjöðurstaf án þess á bæri á hinum góðu, gömlu dögum, og mun verða torvelt að sjá missmíði á, ef svo er að farið. —
Þá er þess getið í 6. gr., hvernig með skuli farið, ef skip strandar, sem hefir áfengi innanborðs, annaðhvort sem skipsforða eða vínsending frá eða til umsjónarmanns, svo og um, ef enginn áfengiseigandi finst innan hins lögskipaða auglýsingafrests. En komið gæfu fyrir fleiri tilfelli en þetta. Það gæti rekið upp skip, sem mestmegnis væri hlaðið áfengi, og sem als eigi hefði átt hingað til lands að fara, og væri þó enginn vafi um eiganda. Hvað á að gera við það áfengi? Eg sé ekkert ákvæði um það.
Þá virðast mér lög þessi koma mjög misjafnlega niður á sjálfum landsmönnum og beinlínis gert ráð fyrir í talsverðu misrétti. Mér skilst, að nú sé svo komið, að þeir einstakir menn, sem vín eiga, er bannið kemst á, hafi rétt til bæði að neyta þess og gefa, svo lengi, sem þeir eiga nokkurn dropa. En allir eigendur víns hafa eigi þennan rétt, því frá þeim degi lög þessi öðlast gildi, er próföstum, lyfsölum, héraðslæknum, smáskamtalæknum og forstöðumönnum hinna ýmsu kirkjudeilda og sömuleiðis forstöðumönnum iðnaðarfyrirtækja, og sem þá hafa heimild til að flytja inn vín, bannað að veita það, en ekki að neyta. Falla þeir undir það ákvæði laganna, sem hljóðar um ólöglegar vínveitingar. Sama er að segja um þá menn, er vínsölu hafa haft á hendi. Eftir 1. jan. 1915 mega þeir engan dropa gefa öðrum. Sjálfir mega þeir líklega drekka. Þó er undanþága á þessu lagaákvæði. Vín mega þessir menn veita hollvinum sínum, ef það er áður gert óhæft til drykkjar, en þá gerist nú hætt við »göróttur drykkurinn« svo sem í gamla daga. Vér hinir megum ekki einungis neyta heldur líka veita vín svo lengi sem það endist. Finst mér ástæðulaust að gera svona upp á milli manna, og skilst mér eigi, hvernig á þessu stendur, nema gleymst hafi að breyta einni greininni, er annari var breytt, og tel eg það sennilegast.
Þá verð eg að benda á, að mér finst dálítið undarlegt, að gert er ráð fyrir því, að landssjóður verði eigandi að talsverðu af áfengi, en hvergi, hvað við það eigi að gera. Það gæti þó farið svo, að landssjóður kæmist yfir allmikið af þessari vöru með tímanum. Bannvinir munu þó tæpast ætlast til, að hann láti selja það, hvorki í stór- né smáskömtum. En mér er alveg óskiljanlegt, hvað þeir ætlast til að gert verði við það. Ímynda mér þó tæplega, að þeir ætlist til, að bygðir séu vínkjallarar og það geymt þangað til bannið verður afnumið, og aftur má fara að selja, þótt það væri eigi það vitlausasta, sem hægt væri að gera við það.
Þá vil eg minnast á verulegt gat, sem er á frumv. þessu, og sýnist mér það eitt nægja til þess að gera frumv. þetta með öllu óhæft til samþyktar. Vínsölu- og veitingamenn mega selja vín um 3 ára skeið, eftir að lög þessi koma í gildi, eða frá 1912—15, og vér hinir megum kaupa vínið. En hvað á að gera við það vín? Ef mér skilst rétt er bannað í þessum lögum að flytja vín um landið, ekki má drekka það inni í búðinni. Það er bannað með öðrum lögum, og hvað á þá að gera við brennivínsflöskuna. Enginn getur með sanni neitað því, að hér sé um svo stóran galla að tala, að hann einn ætti að nægja til þess að frumv. þetta eigi gæti orðið að lögum, nema þetta sé þó lagfært. Geri eg ráð fyrir, að þetta hafi orðið af einhverri vangá. Er það líkast því, er risarnir tóku stúlkurnar í fyrri daga og bundu þær niður á stól og settu fyrir þær krásardisk, rétt við nefið á þeim, en þó svo fjarri að ekki gátu þær náð í matinn til að seðja hungur sitt, skyldi svelta þær til að sýna risanum blíðu sína. En eg vil ekki ætla alþingi, að það leiki slíkan leik. Efri deild hefir ekki komið lagi á þetta fremur en sumt annað, og er það af því, að málið er frá upphafi að efni og formi einskonar óskapnaður. Það er alkunnugt, að þegar vansmíði verða á einhverjum grip í upphafi, þá eru varla svo hagar hendur til, að þær geti lagað það til fulls, og efri deild hefir ekki getað lagað þetta frumv. til hlítar; er oss þó öllum kunnugt, að vel kann hún að halda á hnífnum.
Þegar mál þetta fyrst kom í þingið, er mér óhætt að fullyrða, að frumv. vakti jafnvel óvild bannvina, eins og það var þá úr garði gert. Þá voru uppljóstursmönnum ætluð há laun og mjög þung hegning lögð við broti gegn lögunum. Eg leyfði mér hér á dögunum að geta þess, að það mundi mikið miða til þess, að lögin næði tilgangi sínum, ef uppljósturslaunin væri há, og það að þau voru feld niður — þótt eg sannarlega sæi ekki eftir þeim — gerir það enn þá ólíklegra en ella mundi, að lögin geti náð tilgangi sínum. Svo hefir reynst í Ameríku og skýrði eg frá því á dögunum.
Skal eg nú ekki mikið lengur tefja fyrir, en eg legg áherzlu á, að frumv. er nú töluvert fjær því en í upphafi, að geta náð tilgangi sínum og svo stórgallað að formi og frágangi, að eigi eru tiltök, að það megi verða að lögum, eins og það er. Vil eg ráða bannvinum til, ef þeir ekki vilja svæfa málið með rökstuddri dagskrá eða á annan hátt, sem auðvitað væri hið eina rétta, að fá málið nú tekið út af dagskrá, og reyna að bæta það svo sem unt er, því nægur tími er samt til að fá það afgreitt af þessu þingi. Eins og það er er eigi vansæmdarlaust fyrir þingið að gera það að lögum. Bið eg þá að taka þessi orð mín til greina sem fult alvörumál og töluð eins og þau eru, án nokkurs tillits til, hvort eg sé með eða móti máli þessu. Eg ráðlegg þetta að eins í því skyni, að þingið gæti sæmdar sinnar.