27.03.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1133 í B-deild Alþingistíðinda. (1540)

20. mál, fræðsla barna

Ráðherrann (H. H.):

Eg vil leyfa mér að spyrja hinn háttv. framsm. (H. G.) um það, hvort ekki munu nú vera komin 2 frumv. með breytingar á lögum þessum. Ef svo er, þá finst mér það óviðkunnanlegt og óþarft að búa til tvo nýja lagabálka á sama þinginu til þess að breyta einu og sama lagaboðinu, og vildi eg því leyfa mér að stinga upp á því, að frumv. þessum væri steypt saman, og að eins eitt frv. samþykt af þinginu um þetta mál.