18.02.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1142 í B-deild Alþingistíðinda. (1556)
89. mál, varabiskup
Ráðherrann (H. H.):
Það er almenn kenning kirkjunnar, að biskup eigi að vígjast af biskupi, og að fella niður þann sið sakir lítilfjörlegs kostnaðar finst mér ekki rétt á meðan landið heldur uppi þjóðkirkju. Kostnaðurinn, sem hér er um að ræða, er ekki meiri en svo, að hann er að eins sem svarar lítilfjörlegri launaviðbót, sem æskilegt væri og viðeigandi, að geta sæmt einhvern heiðursmann kirkjunnar ásamt þessu heiðursstarfi. Eg kann als eigi við það, að vara-biskups starfið yrði föst aukageta, sem fylgdi með dómkirkjuembættinu eða prófastsstöðunni í Kjalarnesþingi, því þá kysi einn einstakur söfnuður vara-biskup fyrir alt landið. Það á að vera sérstök virðingastaða, bundin við sérstaka verðleika.