08.03.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1157 í B-deild Alþingistíðinda. (1577)
21. mál, vígslubiskupar
Sigurður Gunnarsson:
Út af hinum síðustu orðum hins háttv. 1. þm. Rvk. (J. Þ.) og meðnefndarmanns míns, skal eg taka það fram, að eg kannast fyllilega við að hafa svo harða húð, að fyrirverða mig engan veginn fyrir framkomu mína í þessu máli.
Hins vegar er mér ljúft að geta þess, fyrir mína hönd og hins meðnefndarmanns míns (E. P.), að við höfum notið mikils fróðleiks hjá hinum hv. meðnefndarmanni okkar (J. Þ.), og erum við honum mjög þakklátir fyrir.
Við höfum fylstu ástæðu til að tjá honum alúðarþakkir fyrir hið þjóðræknislega hugarfar hans, er svo ljóslega kemur fram í þessu frumv.
En það liggja önnur drög til þess, að við höfum ekki séð okkur fært að eiga samferð með honum alla leiðina, og mun eg síðar skýra það nánar. Vil ekki spilla því að frv. hans fái að koma til 2. umr., og mun því geyma aths. mínar þangað til. Það er að eins vottur þess, hve mikla virðing eg ber fyrir hinu þjóðræknislega hugarfari hans, þótt öðruvísi líti eg á þetta mál, og vel hefði þorað að fylgja honum, ef mér hefði virst leiðin hin rétta.