12.03.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1166 í B-deild Alþingistíðinda. (1585)

21. mál, vígslubiskupar

Sigurður Sigurðsson:

Eftir að hafa borið saman brt. 170 og þá á þgskj. 179 virðist mér liggja í augum uppi að till. okkar 1. þm. Skgf. (Ó. Br.) er miklu betri og ákveðnari. Með henni er því slegið föstu, að vígslubiskup fái enga borgun fyrir vígsluferðirnar og engin föst laun.

Að því er vígslukostnaðinn snertir, þá er óþarft að hann verði tilfinnanlegur. Það mætti setja vígslu í samband við »synodus« eða þá að biskup gæti á yfirreið sinni vígt þann vígslubiskupinn, sem ætlast er til að sitji á Norðurlandi, og ætti því bezt við, að það væri gert í Hólakirkju. Verður þá eigi um neinn verulegan kostnað að ræða fyrir vígslu biskups, að undanteknu því, sem hann þarf að borga skraddaranum fyrir tilbúning biskupshempunnar, og þann kostnað fengi hann máske endurgreiddan.