13.04.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1170 í B-deild Alþingistíðinda. (1592)

21. mál, vígslubiskupar

Jón Jónsson (N.-Múl.):

Eg hefi leyft mér að koma fram með br.till. við frumv. þetta, en hún er ekki komin fram enn, og veit eg ekki, hvernig á því stendur. Hið sama er að segja um aðra breyt.till., sem eg vissi til að átti að koma fram með við málið. Eg vildi því leyfa mér að óska þess, að háttv. forseti taki málið út af dagskrá í bráðina, svo að breyt.till. mín geti komist að og ef fleiri væru.