19.04.1909
Efri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 122 í B-deild Alþingistíðinda. (16)
1. mál, fjárlög 1910 og 1911
Agúst Flygenring:
Eg á breytingartillögu við 16. gr. á þgskj. 493, að til aðstoðar verkfræðings til rannsókna og mælinga viðvíkjandi járnbrautarlagningu austur verði veittar 2700 kr. fyrra árið. Á gildandi fjárlögum eru veittar 16500 kr. til undirbúnings slíkrar járnbrautarlagningar, að því er landmælingar snertir, (sem búið er þegar að ljúka við). En nú vantar verkfræðingsmælingar, sem og kostnaðaráætlun frá verkfræðingi. Þegar nú svo miklu hefir verið kostað til mælinga í þessu skyni, sem þó ekki koma að fullu gagni nema verkfræðingur líka rannsaki leiðina og mæli brautarstæði, þá virðist ekkert áhorfsmál, að veita þessa litlu fjárupphæð, einkum þegar þess er gætt, hve hverfandi hún er í samanburði við kostnaðinn við alt verkið. Eg vona því, að deildin sjái sér fært að fallast á tillögu mína, því annars kemur féð sem búið er að borga út í þetta fyrirtæki ekki að neinu gagni.