12.03.1909
Sameinað þing: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 402 í B-deild Alþingistíðinda. (160)

6. mál, aðflutningsgjald

Jón Ólafsson:

Háttv. 3. kgk. þm. hélt því fram í ræðu sinni, að »súrsaft« væri almenn neyzluvara til matar hér, t.d. alveg eins og kaffi og sykur. Eg held þetta sé alls ekki rétt hjá þm.; það mun tæplega vera meira en 1—2% af því sem selt er af þessum vökva, sem notað er til matar; alt hitt er notað til drykkjar. Það er víst kunnugt, að hingað til landsins flyzt mikið af »súrsaft«, ekki sízt frá Valdemar Petersen, sem eingöngu er búin til í þeim tilgangi, að hún sé notuð sem áfengi.

Sami háttv. þingmaður sagði, að ef frumv. yrði samþykt eins og það var afgreitt frá Ed., að þá mundi sætsaftin framvegis verða snara fyrir einstaka aumingja í landinu. Eg vil leyfa mér að spyrja hinn háttv. þm., hvort hann heldur að hún muni verða hættulegri snara eftir þetta, heldur en súrsaftin er og hefir verið. Eg veit að þm. er svo eftirtektasamur og glöggur, að hann muni hafa séð marga Hafnfirðinga, ekki að eins sætkenda, heldur pöddu-fulla og dinglandi af tómri súrsaft, og eg segi þetta ekki af því, að það muni vera undantekning með þennan kaupstað; þvert á móti er þetta að eins það sem víðast viðgengst. Á Austurlandi er það algengt, að menn drekki sig fulla af súrsaft; sama er sagt um Norður- og Vesturland, og á Suðurlandi þekki eg svo mikið til, að eg veit að hún er víðast hvar notuð sem áfengur drykkur.

Sami háttv. þm. sagði, að ekki væri auðið að gráðumæla súrsaft með vínandamæli. Eg held þó, að ef t. d. 2 potta mál er fylt og saftin fylt til helminga með vatni, að þá muni hægt að mæla hana; auðvitað verður þá að tvöfalda gráðutalið, og að í ljós muni koma, að hún stendur stundum ekki mikið að baki brennivíni.