15.04.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1176 í B-deild Alþingistíðinda. (1601)

21. mál, vígslubiskupar

Framsögumaður (Eggert Pálsson):

Eftir því sem mér skilst, þá er háttv. 1. þm. Húnv. (H. G.) á alt annari skoðun, eða lítur alt öðru vísi á þetta mál, en bæði eg og aðrir. Orð hans féllu svo sem hann teldi frumv. þetta í sjálfu sér óþarft eða hálfgert hégómamál, sem hér væri um að ræða. En eg þykist þess fullviss, að fáir muni líta svo á það með honum. Hér er einmitt um atriði að ræða, sem snertir sjálfstæði vort. Frumv. miðar í þá átt, að koma í veg fyrir að fara þurfi út yfir pollinn til þess að vígja biskup landsins. Sú athöfn kemur eða getur komið eigi allsjaldan fyrir, og er því nauðsynlegt, að biskupsefnið þurfi ekki að sigla til þess að taka vígslu, en að hún geti farið fram hér.

En þar sem háttv. þm. heldur því fram, að vígslubiskuparnir eigi og megi vera óvígðir sem biskupar og geti framkvæmt biskupsvígslu jafnt fyrir því, þá er mér ómögulegt að ganga inn á þá skoðun. Enda hefir sú skoðun aldrei verið viðurkend í kirkjunni. Og biskupar landsins hafa því hver eftir annan orðið að sækja vígsluna út sér til skaða og landinu til vansa. Að gera lítið úr vígslu biskupanna og telja hana ónauðsynlega, það er sama sem að draga úr gildi vígslunnar yfir höfuð, eða gera tilraun til að eyðileggja þýðing hennar alveg. Því sé það þýðingarlaust, að vígslubiskuparnir sé biskupsvígðir menn, þá er líka þýðingarlaust að vígja aðalbiskupinn. Og sama má þá segja um prestsvígslur. Nei, sannleikurinn er sá, að það er ekki hægt að álíta fyllilega sæmilegt, að biskupar landsins vígist af einhverjum undirmanna sinna, fremur en prestar af leikmönnum, heldur af einhverjum þeim, er tekið hafa sömu vígslu. Sé það meining háttv. þm., að setja sig á móti frumv. þessu, þá ætti hann að gera það með berum orðum, en vera ekki að koma með breyt.till., er gerir ekki annað en spilla því og gera það með öllu óaðgengilegt, ef breyt. hans næði fram að ganga.