11.03.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1185 í B-deild Alþingistíðinda. (1615)
23. mál, fuglaveiðasamþykt í Vestmannaeyjum
Flutningsmaður (Jón Magnússon):
Það er eftir tilmælum sýslunefndarinnar í Vestmannaeyjum, að eg flyt þetta frumv. um breyting á lögum 13. apríl 1894, sem veita Vestmanneyingum heimild til að búa til fuglaveiðasamþykt. Það hefir af ógáti verið sett í lög þessi, að atkv. um málið hefðu bændur og alþingiskjósendur, en, þegar þau lög voru samin, þá var þetta tvent hið sama, eða því sem nær, en nú eru jarðabændur, ?: þeir er rétt þann hafa, er samþykt á um að fjalla, — að eins lítill hluti (um ?) af öllum alþingiskjósendum á eyjunum.
Hér er því nauðsynlegt og sjálfsagt að breyta, og eg efast ekki um, að hin háttv. deild leyfi þessu máli greiðlega að ganga fram.