10.03.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1193 í B-deild Alþingistíðinda. (1630)

25. mál, skipun læknishéraða o. fl.

Jón Jónsson (N.-M):

Mér virðist að sama megi segja um þetta mál og skipun prestakalla, að úr því geti orðið alveg ótækt hreppaþras, því að hjá því verður ekki komist að altaf verði hér álitamál í þessu efni. Það er röng aðferð að taka þannig eitt og eitt hérað; ætti heldur að athuga allsherjar héraðaskipun í landinu — og þá velja úr þau héruð, þar sem þörfin er brýnust, svo að skipunin gæti orðið sem hentust.

Hins vegar eru líka dæmi þess, að sum héruð eru læknislaus, og væri þá nær að skipa fyrst lækna í þau, áður en farið er út í frekari skipun eða skifting héraðanna.