16.04.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1198 í B-deild Alþingistíðinda. (1638)
25. mál, skipun læknishéraða o. fl.
Framsögumaður (Skúli Thoroddsen):
Aðalmótbára minni hluta nefndarinnar virðist vera læknafæðin og spádómur um það, að ekki muni fást læknar í hin afskektu héruð.
Ef litið er á kjör lækna hér á landi, og þau borin saman við kjör presta alment, þá vitum vér, að seinni hluta síðastliðinnar aldar fengust all-oftast prestar til allra útkjálka-prestakalla landsins, enda þótt prestaköllin væru miklu verri eða ólífvænlegri, en læknahéruðin eru, og hygg eg, að eigi sé fremur ástæða til að óttast, að læknar fáist eigi í útkjálkahéruðin, er frá líður. Ef læknishéruðunum verður fjölgað, þá munu fleiri leggja stund á læknisfræði, en til þessa hefur verið.
Háttv. þm. Vestm. (J. M.) gat þess, að læknaskipunin væri nýlega komin í það horf, að ógerlegt væri og landssjóði um megn, að fjölga læknahéruðum frekar, en gert hefði verið á síðasta alþingi. En til þessa er því að svara, að landssjóður verður að hafa einhver ráð þegar líf manna liggur við; það verður að ganga fyrir öllu öðru.
Það hefir verið hreyft þeirri mótbáru gegn málinu, að á Ísafirði séu 2 læknar. En það bætir lítið úr, að því er til Nauteyrarhéraðs kemur, þótt á Ísafirði sé aðstoðarlæknir, þar sem þar er sjúkrahús, sem sinna verður daglega, og bæjarbúar hátt á 2. þúsund að tölu; auk þess er þeim skylt að gegna læknisstörfum í Bolungarvíkurverzlunarstað, þar sem íbúatalan er yfir 1000 manns, sem og í Súðavíkur- og Eyrarhreppum. — Og víst er um það, að ekki þykir Bolvíkingum sér betur borgið, en svo, þótt tveir læknar séu á Ísafirði, að þegar eg var staddur fyrir vestan í febr. þ. á., báðu þeir mig að leitast fyrir hér syðra, og reyna að útvega þeim lækni, og buðust þeir til, að borga honum 800— 1000 kr. á ári úr sínum vasa. Eg hefi nú leitað fyrir mér hér, en ekki getað fengið neinn að svo komnu.
Eg hefi getið þessa, til þess að sýna fram á, að læknarnir á Ísafirði hafa nóg að gera, þótt sérstakur læknir yrði skipaður í Nauteyrarhéraði.
Skal eg svo ekki fjölyrða um þetta, en vona að háttv. deild telji sér þeim mun skyldara, að samþykkja þetta frumv., sem það er kunnugt, að þessi héruð urðu mjög hart úti á síðasta þingi, er þau voru eigi að eins svift lækni, heldur og presti. —