19.04.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1199 í B-deild Alþingistíðinda. (1640)

25. mál, skipun læknishéraða o. fl.

Framsögumaður (Skúli Thoroddsen):

Eg hefi engu við það að bæta, sem eg tók fram við 1. umr. þessa máls, en vil að eins leyfa mér að mæla sem bezt með því, að frumv. þetta verði samþykt. Að því er snertir viðauka- og breyt.till., sem komið hata fram við frumv., þá sér nefndin sér ekki fært, að veita henni meðmæli sín, þar sem hún hefir aðhylst þá stefnu, að bæta að eins að nokkru úr læknaþörfinni á hverju þingi, og byrja þar sem þörfin er brýnust; en að því er skiftingu Rangárvallasýslu í tvö læknahéruð snertir, þá er þar ekki um jafn óhjákvæmilega þörf að ræða, sem í héruðunum við innanvert Ísafjarðardjúp, hægra yfirferðar, en þar sem sjósókn verður að sæta. —