02.04.1909
Efri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 635 í B-deild Alþingistíðinda. (1649)

27. mál, kosningarréttur og kjörgengi

Framsögumaður (Jósef Björnsson):

Eg ætla ekki að vera langorður. Háttv. 4. kgk. þm. talaði um það, að hjúin hefðu ekki látið uppi óskir um að fá kosningarrétt, né látið neitt til sín heyra um það. Það er satt, að ekki hafa komið opinberlega fram raddir um það, en eigi að síður hafa fleiri en eg heyrt marga lausamenn segja, að þeir vildu ekki fara í vist, af því að þeir mistu við það ýms réttindi, aðallega kosningarréttinn. Eg get ekki séð að það mæli neitt á móti því, að lögleiða kosningarrétt hjúa, þó málið sé frá þingmönnum komið, en ekki beinlínis frá hjúunum. Nú er það búið að fá það fylgi, að það hefir gengið hiklaust gegn um Nd.

Sami háttv. þm. sagði, að með því að veita fjöldanum kosningarrétt, ofurseldu menn að miklu leyti þá efnaðri menn fjöldanum í meðferð fjármála. Það má segja, að það sé ávalt afleiðingin, ef fjöldanum eru veitt aukin réttindi í meðferð opinbers fjár. Hann getur með atkvæðamagni sínu þröngvað kosti hinna, sé atkvæðamagnið notað til að koma á auknum útgjöldum. Það má líta svo á, að þetta sé bæði kostur og ókostur. Kostur er það, sé fénu varið vel og hyggilega, en ókostur, sé því illa varið. Eg tel það kost, að veita almenningi áhrif á meðferð almenns fjár, því með því mun fénu verða betur varið að jafnaði.

Háttv. 2 kgk. þm. tók fram, að sér fyndist réttast, að neyða engan til að taka á móti kosningu. Það er auðvitað, að þá væri jafnréttis-»principið« ekki brotið, ef karlmenn gætu líka skorast undan kosningu, en mér finst þetta brot á »principinu«, að leyfa konum að skorast undan, réttlætast af því, að mikið vantar enn á, að þær hafi jafnan rétt við karlmenn í öðrum efnum.