11.03.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1233 í B-deild Alþingistíðinda. (1657)
26. mál, kennaraskóli
Flutningsmaður (Sigurður Sigurðsson):
Eg vil leyfa mér að geta þess strax, að frumv. þetta er flutt og komið fram eftir ósk skólastjórans við kennaraskólann. Ástæðan fyrir breytingu þeirri, sem frumv. fer fram á er sú, að á almennum nemendafundi, sem haldinn var í skólanum, var sú ósk borin fram, að skólatíminn yrði færður. Samkvæmt núgildandi lögum byrjar skólinn 1. okt. og endar 31. marz. — Ósk nemendanna fer í þá átt, að skólinn byrji 1. vetrardag og endi seinasta vetrardag. Þetta fyrirkomulag telja nemendur betra vegna atvinnu að haustinu, og er það vafalaust rétt, að því er sveitapilta snertir, því það er hægra fyrir þá að fá eitthvað að gera, og atvinnu sína borgaða yfir haustið en seinni part vetrar. Þegar námstíminn er bundinn við 1. október og 31. marz, eins og nú er ákveðið, verður þeim fremur lítið úr tímanum frá því skólinn endar og þar til vorvinna hefst. Hugsanlegt er þó, að ástæða gæti komið fram gegn því, að flytja tímann eins og hér er farið fram á. Í Flensborg endaði skólinn áður fyr með vertíðarkomu, og fóru piltar þá oft að námstímanum loknum í útver til róðra. En nú er þetta breytt, því þegar kennaraskólinn endar 31. marz er komið fram á vertíð, hvort heldur er að ræða um þilskip eða opna báta hér syðra, og allir hafa þá fullráðið. Eg lít því svo á, að eins og nú hagar til með þetta, þá verði nemendum kennaraskólans lítið úr þeim tíma af vetrinum, sem þá er eftir, en gætu betur notað haustið og fengið þá ýmislegt að starfa. Ennfremur er þetta þægilegra fyrir kennara, því þá er að eins hæfilega stuttur hvíldartími fyrir þá, þangað til framhaldsnámsskeið kennara byrjar um miðjan maí. Þessi breyting, sem hér er farið fram á í frumv., er því bæði til bóta fyrir kennara og nemendur, og vona eg því, af þessum ástæðum, sem eg hefi nefnt, að frumv. verði tekið vel, að það fái að ganga til 2. umræðu.