17.03.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1235 í B-deild Alþingistíðinda. (1664)
28. mál, útlent kvikfé
Jón Ólafsson:
Eg vil leyfa mér að beina einni fyrirspurn til háttv. flutnm. (S. S.). Nú koma ferðamenn til landsins og hafa hunda meðferðis. Er meiningin að frv. nái til slíkra hunda? Á að skjóta þá, eða hvað?