17.03.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1236 í B-deild Alþingistíðinda. (1665)

28. mál, útlent kvikfé

Framsögumaður (Sigurður Sigurðsson):

Fyrirspurn þessari vil eg svara þannig, að frumv. nær að sjálfsögðu til slíkra hunda. Það er heldur ekki nema sjálfsagt, að útlendir ferðamenn verði að hlíta þeim lögum, sem gilda í landinu um þetta sem annað. Það nær ekki neinni átt að veita þeim undantekningu í þessu efni.