26.03.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1241 í B-deild Alþingistíðinda. (1679)

29. mál, námskeið verslunarmanna

Sigurður Gunnarsson:

Mér dettur ekki í hug að mæla á móti frumv. þessu í heild sinni. Eg hygg það vel ráðið að setja ýms ákvæði, er tryggi rétt verzlunarnemenda og réttarstöðu þeirra gagnvart vinnuveitendum, en er hins vegar á sama máli og hinn h. 2. þm. Árn. (S. S.) um það, að ástæða sé til að athuga málið betur til 3.umr. Sum ákvæði í frumv. eru á reiki og mjög svo óljós, t. d. orðin: »að jafnaði« í 7. gr. í staðinn fyrir það væri heppilegra að setja t. d. »ef mikið liggur við« eða eitthvað þess háttar. Það er líka nokkuð umsvifamikið að verða að fara til stjórnarráðsins, ef gera þarf undanþágu. Í 8. gr. er ákvæði um það, að verzlunarnemendur skuli undanþegnir starfi »um jólaleytið«. Það er mjög óákveðið og vil eg að um það séu sett nokkru skýrari ákvæði.