05.03.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1249 í B-deild Alþingistíðinda. (1692)

46. mál, verslunarbækur

Flutningsmaður (Jón Ólafsson):

H. 2. þm. Rvk. (M. Bl.) talaði um »stórlýti á málfærinu« á þessu frumv. og »hneykslanleg ákvæði« í efni þess. — Það er nú sælt sameiginlegt skipbrot með »hneykslanlegu ákvæðin«, því að þau munu standa í lögum allra verzlunarþjóða. En mig gleður, að frumv. verði vísað til verzlunarlaganefndarinnar, sem við erum báðir í háttv. 2. þm. Rvk. (M. Bl.) og eg, því að alt af er eg fús að læra, og eg mun því taka með þökkum allri þeirri fræðslu í móðurmálinu, sem háttv. 2. þm. Rvík. (M. Bl.) er fær um, að veita mér.