15.03.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1250 í B-deild Alþingistíðinda. (1694)

46. mál, verslunarbækur

Framsögumaður (Jón Ólafsson):

Frv. þetta er hér um bil alveg eins og það kom fram hér á dögunum. Það eru engar efnisbreytingar, og að eins örfáar orðabreytingar, sem nefndin hefir komið með og fyrir þeim flestum er grein gerð í nefndarálitinu. Eg skal að eins geta þess, að í upphafi hafði gleymst að setja inn í 2. gr. á eftir »verzlunarviðskifti« orðin: »önnur en þau, er hönd selur hendi«. Hefir því nefndin lagt til, að þessu verði bætt inn í. Ástæðan fyrir því ákvæði er sú, að það er ekki tilgangurinn, að skylda menn til þess, að færa inn í frumbók þau viðskifti, er gerast gegn borgun út í hönd.

Þessi breyting er svo sjálfsögð, að eigi er þörf að fara fleiri orðum um, og svo er og um þær litlu breytingar aðrar, sem gerðar hafa verið á orðalaginu.