22.04.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1252 í B-deild Alþingistíðinda. (1702)

46. mál, verslunarbækur

Framsögumaður (Jón Ólafsson):

Eins og eg gat um áðan, hafa báðar brt.till. talsvert til síns máls. Það hefir að líkindum vakað fyrir Ed. að tíðkast hefir hér á Suðurlandi, og jafnvel víðar, að rita í bækur, sem afrit af skriftinni kemur út af á öðru blaði. Það er eigi rétt hjá háttv. 1. þm. G.-K., (B. Kr.) að endilega þurfi að skrifa með blýant í þessar bækur. Það má alveg eins nota blek og penna og er það mjög hagkvæmt, að sögn þeirra kaupmanna, sem notað hafa, og aldrei komið neinar umkvartanir viðvíkjandi reikningum, síðan þeir byrjuðu á þessu.

Svo er og á það að líta, að þeir menn sem hafa bókarreikning, eiga heimtingu á að fá afrit af honum, og er eg í því algerlega samþykkur háttv. Ed.